Sundlaugar Íslands

– áskorun fyrir fjölskylduna

Við erum einstaklega heppin hér á Íslandi, sama hvort þú ert í miðbæ Reykjavíkur eða í óbyggðum Hornstranda, þá er næsta sundlaug líklega ekki langt undan. Þær eru alls staðar – sumar eru litlar náttúrulaugar sem lítið hefur verið átt við, aðrar nánast heill sundlaugargarður með nokkrum rennibrautum og pottum.
Flestum krökkum þykir afskaplega gaman í sundi, enda er dásamlegt að leika sér í vatni. Því er þetta tilvalin hugmynd fyrir sumarfríið:
Hvers vegna ekki að taka áskorun og reyna að fara í allar sundlaugar landsins – eða sem flestar?

Áskorunin er einföld. Prófið allar sundlaugarnar á listanum, engin tímamörk, og gefið þeim síðan einkunn. 

Sundlaugarnar eru um 110 talsins, dreifðar um allt landið, og þetta verkefni gæti vel tekið mörg sumur – sem gerir það bara enn skemmtilegra. Það er auðvitað hægt að sleppa þeim sundlaugum sem höfða ekki til ykkar. Sem dæmi eru nokkrar laugar á landinu litlar innilaugar sem eru kannski ekki mjög spenanndi fyrir alla.
Í þessari áskorun teljast eingöngu sundlaugar sem eru opnar almenningi og með viðunandi klefaaðstöðu – það eru sem sagt ekki náttúrulaugar án aðstöðu og ekki ný og dýr baðlón. Flestar lauganna eru reknar af sveitarfélögum, en nokkrar eru á vegum ferðaþjónustuaðila.

Þú getur sótt PDF með korti og gátlista yfir allar laugar – merkt við þær sem þú hefur heimsótt, gefið þeim einkunn og skipulagt næstu ferð.

Sæktu kortið hér, gátlistann hér og byrjaðu sundlaugaævintýrið!