Kanasta - spilareglur
Kanasta er skemmtilegt og krefjandi spil fyrir 2-6 spilara sem spilað er með venjulegum spilastokkum. Það er mörgu leyti líkt rommý og öðrum spilum þar sem markmiðið er að safna spilum með sama gildi. Spilið hentar mjög vel fyrir spilakvöld í bústaðnum.
Markmið spilsins
Markmið spilsins er að safna stigum með því að leggja niður samstæður, þ.e. þrjú eða fleiri spil með sama gildi og reyna að búa til kanöstur. Það eru samstæður með sjö spilum af sama gildi (t.d.: sjö fjarkar eða sjö áttur).
Spilið er yfirleitt spilað þar til lið eða spilari nær 5000 stigum.
Fjöldi spilara
Algengasta útgáfan af Kanöstu er spiluð með fjórum spilurum en einnig eru til útgáfur fyrir tvo og þrjá spilara.
Spilin
Notaðir eru: Tveir spilastokkar (52 spil hvor) og allir jókerar. Samtals eru því 108 spil í spilinu.
Uppsetning spilsins
Hver spilari fær 11 spil á hendi.
Restin af spilunum myndar stokk á grúfu á miðju borðinu.
Einu spili er snúið upp og byrjar kastbunkann (þar sem spilurum er kastað).
Gangur spilsins
Í hverri umferð gerir spilari þrjú atriði:
Dregur spil, annað hvort:
eitt nýtt úr bunkanum
eða tekur allan kastbunkann (ef reglur leyfa)
Leggur niður alla rauða þrista ef þeir eru á hendi
Leggur niður samstæður (ef vill og skilyrði eru uppfyllt)
Kastar einu spili efst á kastbunkann
Síðan tekur næsti spilari við.
Samstæður
Samstæða eru þrjú eða fleiri spil með sama gildi.
Dæmi:
4♥ 4♠ 4♦
9♣ 9♦ 9♠
Það má einnig nota jókera eða tvista (lausaspil) sem staðgengla.
Lausaspil
Lausaspil í Kanösta eru:
Tvistar
Jókerar
Þau geta staðið fyrir önnur spil, en það mega aldrei vera fleiri lausapil en venjuleg spil í samstæðu.
Dæmi:
9♣ 9♦ 2♠ – er leyfilegt
7♠ 2♦ Jóker – er ekki leyfilegt
Kanöstur
Samstæða með 7 eða fleiri spilum af sama gildi kallast kanasta.
Kanasta er til í tveimur gerðum:
Hrein kanasta – hún inniheldur aðeins venjuleg spil
Blönduð kanasta – inniheldur eitt-þrjú lausaspil
Lið má ekki loka spilinu (klára spilin sín) nema það eigi að minnsta kosti eina kanöstu.
Að taka kastbunkann
Spilari má taka allan kastbunkann ef:
efsta spilið passar við tvö samskonar spil á hendi, þannig að hægt sé að mynda samstæðu
- efsta spilið passar við eitt samskonar spil á hendi og eitt lausaspil
eða ef spilið passar við samstæðu sem spilarinn hefur þegar lagt niður
Ekki má taka kastbunkann ef efsta spilið er lausaspil eða svartur þristur.
Að loka spilinu
Spilinu lýkur þegar spilari:
hann eða liðið hans á að minnsta kosti eina kanöstu
og hann kastar síðasta spilinu sínu í kastbunkann eða leggur niður á borðið
Síðan eru stigin talin saman.
Stigagjöf
Gildi spilanna
3–7 = 5 stig
8–K = 10 stig
Ásar og tvistar = 20 stig
Jókerar = 50 stig
- Hver rauður þristur = 100 stig,
- ef lið nær öllum fjórum rauðu þristunum = 800 stig
Bónusstig
Hrein kanasta = 500 stig
Blönduð kanasta = 300 stig
Að loka spilinu = 100 stig
Spil sem spilari situr eftir með á hendi teljast sem mínusstig.
Eins og áður kom fram er Kanasta yfirleitt spiluð upp í 5000 stig, en spilarar geta vissulega komið sér saman um annað.
Aðrar útgáfur
Þessi útgáfa af spilinu er fyrir 4 spilara sem spila þá í tveimur liðum.
Ef tveir spila saman eru gefin 15 spil í byrjun.
Ef þrír spila saman eru gefin 13 spil í byrjun.
Ef sex spila saman eru gefin 13 spil í byrjun en notaðir eru þrír spilastokkar og sex jókerar. Tveir og tveir spila saman. Fimm rauðir þristar gefa 1000 stig, sex rauðir þristar gefa 1200 stig. Einnig er hægt að hafa þrjá og þrjá í liði.




