/ Jól, kökur, Matur, uppskriftir Múskatkökur Hér er uppskrift að dásamlegum jólasmákökum sem eru svolítið „old school“ en engu að síður mjög ljúffengar.150 g mjúkt smjör eða smjörlíki3 dl púðursykur2 egg4,5 dl hveiti1 tsk matarsódi1 tsk lyftiduft1 tsk múskatsúkkulaðibitar Aðferð: Þeytið smjör og púðursykur ljóst og létt. Bætið eggjunum við og hrærið í um leið.Látið þurrefnin saman við og blandið.Látið deigkúlur á bökunarplötu með teskeiðum. Kúlurnar verða að vera litlar því kökurnar stækka mjög mikið í ofninum. Stingið einum súkkulaðibita á hverja köku.Bakið í 5 mínútur við 220°C hita.