Myndir úr fyrsta afmæli barnsins
Öll viljum við eiga fallegar myndir af stórum viðburðum í lífi barnanna okkar. Fyrsta afmælið þeirra er einn slíkra viðburða. Ég hef hér tekið saman nokkar hugmyndir að skemmtilegum myndum sem gaman væri að eiga úr fyrsta afmælinu.
Myndir af…
- Veitingunum. Hvað var í boði í fyrsta afmæli barnsins?
- Skreytingunum.
- Barninu með foreldrum sínum
- Barninu með ömmum og öfum
- Barninu með frændsystkinum sínum
- Barninu með öðrum ættingjum
- Öllum hópnum
- Barninu að sýna aldurinn með því að halda uppi einum fingri
- Barninu með afmæliskökunni
- Barninu að reyna að blása á kertið
- Barninu að smakka afmæliskökuna
- Barninu að reyna að opna gjafrnar sínar
- Foreldrunum að kveikja á kertinu
- Gestunum á meðan þeir tala við barnið
- Gestunum að njóta veislunnar
Það þarf að sjálfsögðu ekki að gera þetta allt. Þetta eru eingöngu hugmyndir að myndum sem gæti verið gaman að eiga úr fyrsta afmælinu.
Myndir úr fyrsta afmæli barnsins Read More »

