Pökkunarlisti fyrir ferðina
Pökkunarlisti fyrir ferðina Read More »
Það getur oft fylgt því mikil streita að pakka niður fyrir ferðalög, sérstaklega þegar öll fjölskyldan fer með.
Oft gleymist eitthvað eða að maður tekur alltof mikið með sér!
Þess vegna bjuggum við til nýtt verkfæri hér á Heimilisvefnum:
Pökkunarlisti fyrir ferðina
Þetta er einfaldur og snjall listi sem aðlagast hverri ferð fyrir sig eftir:
fjölda ferðalanga
og hjálpar þér að muna það sem skiptir máli, án þess að ofpakka.
Þú getur:
✔️ hakað við það sem er komið í töskuna
✔️ fjarlægt það sem á ekki við
✔️ bætt við eigin hlutum
Hvort sem þú ert að fara í útilegu, borgarferð, sólarlandaferð eða í bústað, þá ætti þetta að gera niðurpökkunina aðeins auðveldari.
Þú getur prófað listann hér:
Pökkunarlisti fyrir ferðina
Vonandi nýtist þetta vel og sparar smá stress fyrir ferðirnar í sumar!
Pökkunarlisti fyrir ferðina Read More »
Nú þegar styttist í að leikskólarnir byrji aftur eftir sumarfrí er gott að rifja upp hvað er gott að hafa með af fötum og útifötum fyrir leikskólann. Listinn getur verið breytilegur eftir þörfum barnanna, árstíðum og skoðunum foreldra en hér eru ágætis listar:
Útiföt að sumri til:
Útiföt að vetri til:
Aukaföt:
Auk þessa fatnaðar þarf barnið að hafa með sér það sem það notar í hvíldinni, t.d. bangsi, teppi eða snuð, og bleiur ef það þær ennþá.
Hvað er gott að hafa í leikskólatöskunni? Read More »
Það er að mörgu að huga áður en lítið kríli bætist við fjölskylduna. Lítil börn þurfa vissulega ekki margt og ást um umhyggja foreldranna er lang mikilvægust. Það geta samt ýmsir hlutir gagnast okkur vel að eiga þegar barnið mætir á svæðið til að gera allt auðveldara. Þarfir hverrar fjölskyldu og barns eru mismunandi svo það er erfitt að búa til lista sem gildir fyrir alla. Sumir foreldrar ætla t.d. að nota taubleyjur í stað bréfbleyja, á meðan aðrir ætla að láta barnið til að nota kopp frá fæðingu. En hér er engu að síður listi yfir hluti sem gagnlegt er að eiga þegar barnið kemur, eða fljótlega eftir það.
Neðst í færslunni er excel-skjal sem hægt er að nota við skipulagningu.
Hlutir sem er eða gæti verið gott að eiga við skiptiaðstöðuna.
Hlutir sem er eða gæti verið gott að hafa í barnaherberginu eða í tengslum við svefn.
Heimilisvefurinn hefur útbúið excel-skjal með öllu því helsta sem þarf að eiga þegar barnið loksins kemur. Hægt er að opna skjalið í excel og fylla það út jafnóðum í tölvunni eða þá að opna það með Google Drive. Ef síðari kosturinn er valinn er hægt að uppfæra skjalið í símanum.
Í skjalinu er skýr tafla með barnafötum í mismunandi stærðum (fyrir fyrstu 9 mánuðina eða svo) og viðmið um hvað er gott að eiga mörg stykki af hverri flík. Þegar þú fyllir inn í skjalið það sem er nú þegar komið af barnafötum er hægt að setja tölu í réttan reið og svo þegar viðmiðinu er náð er hægt að merka við í reitinn þar sem stendur komið. Sumt í skjalinu er merkt með * eða ** og það eru þá hlutir sem er ekki nauðsynlegt að eiga eða að minnsta kosti ekki nauðsynlegt fyrst um sinn.
Þetta skjal mun vonandi hjálpa ykkur að hafa yfirsýn yfir það sem er til af barnafötum og kemur sér vonandi vel þegar þið standið í miðri verslun eða loppu og munið ekkert hvað vantar. Þá er hægt að opna skjalið í símanum og sjá hvort það vantaði nú ekki örugglega fleiri buxur.
Auðvitað eru tölurnar í skjalinu ekki heilagar og auðvelt er að breyta og bæta við í skjalinu. Tölurnar eru eingöngu viðmið svo ekki sé allt stútfullt af fötum en einnig þannig að það þurfi ekki stöðugt að vera að þvo.
Til þess að geta notað skjalið í Google Drive og þar af leiðandi í símanum líka þarf að byrja á því að hala niður skjalinu hér að ofan, fara svo inn á Google Drive og búa til nýtt tómt sheets-skjal. Inni í því skjali þarf að smella á file og síðan open svo á upload og browse, finna rétta skjalið í tölvunni og smella á það. Þá ætti skjalið að birtast fljótlega í nýja sheets-skjalinu.
Hvað er gott að eiga þegar barnið kemur? Read More »
Nú á upphafsárum gervigreindar er gott að fara yfir hvernig hún getur gagnast okkur við heimilishaldið. Við höfum ekki hugmynd um hvernig þetta mun þróast en eitt er víst að gervigreind er nú þegar orðin til margra hluta nytsamleg. Það vita þó ekki allir alveg hvernig hún getur komið að gagni. Raunin er sú að gervigreind getur hjálpað til með hin ýmsu verkefni tengdum heimilishaldi. Líka gervigreind eins og Chat GPT sem að aðeins skrifar texta. Chat GPT talar þar að auki íslensku, vissulega ansi bjagaða og oft með ýmsum villum, þegar þetta er skrifað. Það sem slík gervigreind getur hjálpað okkur með eru upplýsingar, leiðbeiningar, hugmyndir og alls kyns uppástungur. Hér eru nokkur dæmi um hvernig gervigreindin Chat GPT getur hjálpað okkur við heimilishald:
Eins og sést getur gervigreind hjálpað okkur með fjölmörg verkefni sem tengjast heimilinu og sjálfsagt eru þau enn fleiri en þessi. Gervigreindin þróast nú á ógnarhraða og hver veit hvað hún getur gert eftir mánuð, eða ár. En nú er bara næsta skref að prófa þetta sjálf og sjá hvað gervigreind getur gert.
Athugið samt að það getur komið eitthvað algjört bull frá gervigreindinni, sérstaklega þegar hún er spurð á íslensku. Sem dæmi um villur sem hún getur gert er að búa til ný orð og þegar við báðum hana um að búa til matseðil fyrir okkur fyrir næstu viku var þetta í matinn:
Frekar skrítnar hugmyndir hjá henni en þetta getur veitt manni innblástur fyrir matseðilinn. Séu nákvæmlega sömu fyrirmæli þýdd yfir á ensku og gervigreindin spurð á ensku er matseðillinn mun betri og með leiðbeiningum:
Það er líklega betra að spyrja gervigreindina á ensku, ef það er möguleiki, enn sem komið er en vonandi lagast íslenskan í framtíðinni.
Hvernig getur gervigreind hjálpað okkur með heimilishald? Read More »
Það er margt sem þarf að huga að þegar pakkað er niður fyrir ferðalag. Það er mjög leiðilegt að vera búin(n) að dröslast með þunga tösku, fulla af fötu, um flugvelli og nota svo kannski bara brot af því sem maður pakkaði niður. Þarf maður tíu boli fyrir tveggja vikna ferðalag til Spánar? Nei, mjög líklega ekki. En hvað þarf maður þá marga boli í raun og veru? Svarið við þeirri spurningu er ekki alveg einfalt en hér verður leitast við að svara þeirri spurningu og fleirum um hvernig maður pakkar niður fyrir ferð í sólina.
Áður en byrjað er að pakka niður er gott að spyrja sig þessara spurninga því þær skipta máli upp á hvað og hversu mikið af því er pakkað niður.
Það er best að taka fyrirferðamesta fatnaðinn með inn í flugvélina. Ef þú ætlar að taka með úlpu eða jakka (svona ef það skyldi nú vera kalt eitt kvöldið), þá er best að taka jakkann með í flugvélina í stað þess að láta hann taka pláss í ferðatöskunni.
Hér er tafla sem sýnir hvað er gott að taka mikið af hverju miðað við lengd ferðar. Auðvitað þurfið þið að aðlaga listann að ykkar eigin þörfum, sum okkar svitna til dæmis mun meira en önnur og gætu því þurft að bæta aðeins við tölurnar. Allar tölurnar eru miðaðar að því að það sé ekki sett í þvott í ferðinni.
*Ef ekki er hægt að komast í þvottavél. Það er frekar erfitt að ferðast í mánuð eða meira án þess að setja í þvott. Betra væri að pakka niður fyrir 1-2 vikur og setja í þvottavél þegar hægt er.
**Oft innifalið.
Fleira sem gott er að taka með í sólarlandaferð. Það er hægt að prenta myndina út.
Pakkað niður fyrir ferð í sólina Read More »
Eitt besta sparnaðarráð sem hægt er að gefa er að kaupa sem mest notað. Nytjamarkaðir og loppur eru yfirfullar af hlutum sem fólk er búið að losa sig við eða er að reyna það. Það er hægt að gera verulega góð kaup á slíkum stöðum og spara sér oft mörg þúsund krónur. Það leynast oft ótrúlegustu hlutir á svona mörkuðum, suma þarf kannski að gera örlítið við en aðrir eru alveg heilir og fínir.
Hér í þessari færslu verður ekki farið nánar út í kosti þess (eða galla) að versla notaða hluti í stað nýrra. Það verður gert seinna.
Heimilisvefurinn hefur tekið saman, vonandi sem flesta, nytjamarkaði og loppur sem eru starfandi á Íslandi í dag. Antíkbúðir eru ekki með í þessari upptalningu, því þær eru oft dýrar og því ekki beint hægt að spara neitt við að versla við þær.
Í Molanum á Reyðarfirði.
Opið miðvikudaga, fimmutdaga og föstudaga kl. 14-18 og frá 12 til 16 um helgar.
Fjarðabásar er básaleiga og þar er hægt að selja fatnað og fylgihluti.
Litla Rauðakrossbúðin á Stöðvarfirði
Í samkomuhúsinu, gengið inn að ofanverðu
Opið 13-15 á laugardögum (yfir veturinn?)
Staðsett á efri hæð Kjörbúðarinnar
Bakka 3
Dynskógum 4
Opið 16-18 á þri, mið og fim og 12-14 á laugardögum
Hjá Rauða krossinum á Egilsstöðum fæst allt frá fötum og upp í húsgögn.
Ingólfsstræti 19 í Reykjavík
Opið 14-18 á þriðjudögum og fimmtudögum
Á markaðnum fást föt, bækur og ýmsir hlutir.
Skeifunni 11A í Reykjavík
Opið 11-18 alla virka daga nema fimmtudag en þá er opið til 21, 11-17 um helgar
Í Barnaloppunni selur fólk föt og hluti tengda börnum og meðgöngu.
Austurveri, Háaleitisbraut 68 í Reykjavík
Opið 12-18 alla virka daga, lokað um helgar
Nytjamarkaðurinn er rekinn af Sambandi íslenskra kristboðsfélaga. Á markaðnum fást föt, bækur og smáhlutir.
Austurströnd 10 á Seltjarnarnesi
Opnunartímar mismunandi en auðvelt að sjá þá á Facebooksíðu búðarinnar.
Allur ágóði af sölu í Elley rennur til kvennaathvarfsins.
Smáralind í Kópavogi
Opið 11-19 alla virka daga, 11-18 á laugardögum og 12-17 á sunnudögum
Í Extraloppunni selur fólk föt og fylgihluti sem það er hætt að nota.
Stekkjarbakka 6, 109 Reykjavík.
Opið 12-19 á virkum dögum og 12-17 um helgar.
Hér getur fólk selt og keypt vörur af öðrum.
Iðufelli 14 í Reykjavík
Opið 13-17 alla virka daga
Á nytjamarkaðnum fæst allt frá fatnaði til húsgagna.
Bókasafninu Gerðubergi í Reykjavík
Opið 8-18 á mán til fim og 8-16 á föstudögum
Í Fríbúðinni er hægt að fá alls kyns hluti fyrir heimilið og bækur alveg ókeypis! Í raun er þetta eins konar skiptimarkaður frekar en nytjamarkaður því það er líka hægt að koma með heila og vel með farna hluti til að skilja eftir.
Gallerí Fló – eingöngu á netinu núna
Gallerí Fló er nytjamarkaður í einkaeigu. Þar er hægt að finna allt fá húsgögnum til fata.
Köllunarklettsvegi 1 í Reykjavík
Opið 11-18 alla virka daga og 11-17 um helgar
Í Góða hirðinum fást alls kyns hlutir af öllum gerðum og stærðum en minna er af fatnaði og vefnaðarvöru.
Smiðjuvegi 4a í Kópavogi
Opið 11-18 alla virka daga og 12-16 á laugardögum og sunnudögum.
Í Gullinu mínu selur fólk föt og hluti sem það er hætt að nota.
Hertex, fata- og nytjamarkaður Hjálpræðishersins
Vínlandsleið 6 í Reykjavík
Opið 11-17 alla virka daga og 12-16 á laugardögum
Þórunnartúni 2 í Reykjavík
Opið 12-18 alla virka daga, 12-17 á laugardögum og 12-16 á sunnudögum
Í Hringekjunni selur fólk föt og fylgihluti sem það er hætt að nota.
Nytjamarkaður ABC barnahjálpar
Smiðjuvegi 2 í Kópavogi og Laugavegi 118 í Reykjavík
Opið 12-18 alla virka daga og 12-16 á laugardögum og sunnudögum.
Á Smiðjuvegi er eru föt, heimilistæki, skrautmunir o.fl. til sölu en aðallega eru föt til sölu á Laugavegi. Nytjamarkaðirnir eru reknir til styrktar starfinu í ABC barnahjálp.
Laugavegi 12 í Reykjavík
Opið 10-18 alla virka daga og 12-16 um helgar
Í búðinni fást föt.
Í Mjóddinni
Opið 10-18 alla virka daga og 12-16 á laugardögum
Í búðinni fást föt, minni hlutir, vefnaðarvara og allt í handavinnuna.
Laugavegi 116 í Reykjavík
Opið 10-18 alla virka daga og 12-16 á laugardögum
Í búðinni fást aðallega föt.
Smáratorgi í Kópavogi
Opið alla virka daga kl. 10-19, á laugardögum kl. 10-18 og á sunndögum kl. 12-18.
Í Ríteil getur fólk selt föt og fylgihluti.
Laugavegi 26 í Reykjavík (inngangur á Grettisgötu)
Opið 10-18 alla virka daga og 11-18 um helgar
Í Verzlanahöllinni selur fólk föt og fylgihluti sem það er hætt að nota.
Sunnuhlíð 12 á Akureyri
Opið 12-18 alla virka daga og 12-16 á laugardögum
Í Aftur nýtt getur fólk selt föt og fylgihluti sem það er hætt að nota.
Furuvöllum 13 á Akureyri
Opið 10-16 á virkum dögum en til 18 á fimmtudögum
Í verslun Fjölsmiðjunnar fást húsgögn og húsbúnaður.
Sigluvík, Svalbarðsströnd
Opið 13-17 föstudag til sunnudags
Ýmislegt til sölu fyrir heimilið. Mikið vintage.
Kaupangi á Akureyri
Opið alla virka daga kl. 12-18 og á laugardögum kl. 12-17.
Í Lottunni getur fólk selt föt og fylgihluti.
Óseyri 18, Akureyri
Opið alla virka daga frá 13 til 17 og á laugardögum frá 13 til 16.
Í Norðurhjálp fást aðallega húsgögn og aðrir hlutir fyrir heimilið.
Viðjulundi 2 á Akureyri
Opið 13-17 alla virka daga og 12-16 á laugardögum
Á markaðnum fást aðallega föt.
Húnabraut 13
Opið 13-16 á þriðjudögum
Á markaðnum fást föt, bækur og smáhlutir.
Hafnarbraut 7
Opið 15-17 á miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum
Í búðinni fást aðallega föt.
Strandgötu 23
Opið 13-17 á miðvikudögum
Á markaðnum fást mest föt en eitthvað er til af bókum og öðrum hlutum.
Gamla sláturhúsi VSP
Opið 11-16 á laugardögum á sumrin
Á markaðnum er hægt að fá húsgögn, bækur og alls kyns hluti.
Vallarbraut 4
Austurmörk 1
Opið 12-18 alla virka daga, 12-17 á laugardögum og sunnudögum
Básaleigumarkaður í Hveragerði þar sem fólk getur selt föt og fylgihluti sem það er hætt að nota.
Eyravegi 21
Opið 11-18 alla virka daga og 11-16 á laugardögum
Básaleiga þar sem hægt að kaupa föt og fylgihluti fyrir bæði börn og fullorðna.
Gagnheiði 32
Opið 11-18 alla virka daga og 12-16 á laugardögum
Nytjamarkaðurinn er rekinn af Hvítasunnukirkjunni. Þar fást föt, bækur, smáhlutir, húsgögn o.fl.
Vestmannaeyjabraut 37
Opið 13-17:30 alla virka daga og 12-15 á laugardögum
Í versluninni fást föt með sögu og ýmislegt fleira. Áberandi snyrtileg og fín búð. Allur ágóði rennur til heilsugæslunnar í Kubuneh í Gambíu.
Flötum 29
Opið 13-17 miðvikudaga til föstudaga og 13-16 á laugardögum (eða eftir samkomulagi)
Í Vosbúð eru húsgögn og ýmsir hlutir til sölu.
Flugvallarbraut 730 í Keflavík (Ásbrú)
Opið 12-16 á þriðjudögum til föstudaga og 12-15 á laugardögum
Á markaðnum fást föt, bækur og smáhlutir.
Fataverslun Rauða krossins á Suðurnesjum
Smiðjuvöllum 8 í Keflavík
Opið 13-17 á miðvikudögum og fimmtudögum
Í versluninni er hægt að fá föt.
Baldursgötu 14 í Njarðvík
Opið 13-18 alla virka daga
Markaðurinn selur að mestu leyti fatnað.
Njarðarbraut 9 í Reykjanesbæ
Mánudaga – Föstudaga 11:00 – 17:30
Laugardagur 11:00 – 16:00
Víkurbásar bjóða upp á básaleigu fyrir fatnað og fylgihluti.
Suðurgötu 9 á Ísafirði
Opið 10-16 á virkum dögum nema á fimmtudögum frá 10-18
Á markaðnum fæst fatnaður, smávara, skór, bækur og margt fleira.
Nytjamarkaður Rauða krossins í Barðastrandarsýslu
Bjarkargötu 11 á Patreksfirði
Opið 12-14 á laugardögum
Smiðjuvöllum 9 á Akranesi
Opið 12-15 á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum
Á markaðnum fæst allt frá fatnaði til húsgagna.
Nytjamarkaður Körfuknattleiksdeildar Skallagríms
Brákarbraut 27 í Borgarnesi
Opið 17-20 á fimmtudögum, 14-18 á föstudögum og 12-16 á laugardögum
Á markaðnum fást húsgögn, bækur, smáhlutir o.fl.
Borgarbraut 57
Opið 14-18 á föstudögum og 13-16 á laugardögum
Í búðinni fást aðallega föt.
Vesturbraut 10 í Búðardal
Nesvegi 13
Á Barnamarkaðnum er hægt að kaupa notaðar vörur og fatnað fyrir börn.
Fyrir þau sem ekki komast í Góða hirðinn í Reykjavík er hægt að notast við vefverslun verslunarinnar. Þar er búið að safna saman áhugaverðum hlutum sem ratað hafa í nytjagáma.
Regn er smáforrit fyrir síma þar sem þú getur selt og keypt notaðar vörur.
Visteyri er vistvænt markaðstorg þar sem þú getur selt og keypt notaðar vörur.
Nytjamarkaðir og loppur um allt land Read More »
Það er yndislegt að fara með fjölskyldu og/eða vinum í útilegu á Íslandi. Veðrið er kannski ekki alltaf að vinna með manni en minningarnar eru ómetanlegar. Það sem gerir útilegur líklegri til að verða vel heppnaðar er auvitað góður undirbúningur og réttur búnaður. Heimilisvefurinn hefur tekið saman lista yfir hluti og búnað sem gott er að taka með sér í útilegu á Íslandi. Það eru ekki allir hlutir á listanum bráðnauðsynlegir en margir gætu komið sér mjög vel. Þið finnið auðvitað út úr því sjálf hvað hentar fyrir ykkur.
Grunnurinn
Tjald og tjaldhælar
Bönd
Svefnpokar/sængur
Dýnur
Koddar
Teppi
Vasaljós
Vasahnífur
Límband/teip
Borð og stólar
Matreiðsla
Prímus
Ferðagrill
Kol og grillvökvi eða gaskútur
Grilláhöld og bakkar
Álpappír
Litlir plastpokar og ruslapokar
Eldspýtur eða kveikjari
Pottur og panna
Áhöld (t.d. Spaði, hnífur og sleif)
Hnífapör
Diskar, glös, bollar, skálar
Skæri
Skurðarbretti
Tappatogari eða dósaopnari
Vatnsflaska
Kælitaska
Matur/nesti
Matarolía/smjör
Salt, pipar og krydd
Kaffi og allt tengt því
Uppþvottalögur og bursti
Viskustykki og tuskur
Eldhúspappír
Ef ungt barn er með
Ferðarúm/burðarrúm
Svefnpoki/kerrupoki
Ferðakerra
Bleyjur
Snuð
White noise
Barnamatur
Blautþurrkur
Skiptitaskan
Leikföng (ekki of mikið)
Fatnaður
Hlý ullarnærföt
Bolir og stuttbuxur
Sundföt
Yfirhafnir (regnjakki, úlpa…)
Lopapeysa eða önnur hlý peysa
Góðir skór og sokkar
Náttföt
Húfa og vettlingar
Buxur og peysur
Nærföt
Hreinlæti o.fl.
Tannkrem og tannbursti
Sólarvörn
Blautþurrkur
Handklæði
Skyndihjálparkassi (plástrar o.fl.)
Ofnæmistöflur og lyf
Skordýrafæla
Handspritt
Rakvél
Kælikrem/after sun
Sjampó og hárnæring
Svitalyktareyðir
Dömubindi og tappar
Rakakrem
Annað
Hamar (fyrir tjaldhæla)
Lítill bakpoki/sundpokar
Afþreying (t.d. Bók, krossgátublað, tímarit, spilastokkur, kubbur, boltar, frisbídiskur, leikföng)
Sólgleraugu
Eyrnatappar
Kort/peningar
Ökuskírteini
Hleðslutæki
Sími
Myndavél
Fyrir þau sem finnst gott að fá lista til að prenta út er hér pdf-skjal með tékklista. Á listanum eru auðar línur svo hægt sé að bæta við hlutum á hann.
Hvað er gott að taka með í útileguna? Read More »






