Hvað á ég að skrifa í fermingarkort?
Það vefst fyrir mörgum hvað skrifa á í fermingarkort, sérstaklega ef maður þekkir fermingarbarnið ekki vel. Heimilisvefurinn hefur tekið saman nokkrar kveðjur sem skrifa má í fermingarkort eða í siðfestukort.
Eins og með öll skrif er gott að byggja fermingarkort eða siðfestukort þannig upp að þau hafi upphaf, miðju og endi. Í kortum er þó reyndar best að byrja á ávarpi til þess sem er að fermast, en það er líka hægt að flétta ávarpið inn í upphaf kortsins. Svo tekur við smá texti fyrir miðju kortsins til að gera það persónulegra, jafnvel þótt maður þekki manneskjuna ekki vel, og loks endar maður á einhvers konar kveðju og nafninu sínu. Hér fyrir neðan eru hugmyndir að ávörpum, hvað skrifa má í upphafi, miðjunni og í lokin.
Ávarp
Ávörp eru mis persónuleg og fer það allt eftir því hvernig þú þekkir manneskjuna.
- Til elsku…
- Elsku…
- Kæri/kæra…
- Kæri/kæra… minn/mín/mitt
- Til…
- Elskulega vinkona/elskulegi vinur
Upphaf
Hér eru nokkrar uppástungur til að byrja fermingar- eða siðfestukortið. Það er vel hægt að flétta ávarpinu inn í þessar hamingjuóskir með því t.d. að segja „Innilega til hamingju með daginn elsku [nafn] mín“.
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með daginn
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með daginn þinn
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með áfangann
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju á fermingardaginn/siðfestudaginn
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með ferminguna/siðfestuna
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með þennan stóra áfanga
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með þennan stóra áfanga í lífinu
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með þessi merku tímamót
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með áfangann sem þú fagnar hér í dag
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með þennan stóra áfanga sem þú fagnar hér í dag
- (Innilega/Hjartanlega) til hamingju með að hafa gert Jesús að leiðtoga lífs þíns
- (Innilegar/Hjartanlegar) hamingjuóskir á fermingardaginn/siðfestudaginn
- (Innilegar/Hjartanlegar) hamingjuóskir með daginn
- (Innilegar/Hjartanlegar) hamingjuóskir með daginn þinn
- (Innilegar/Hjartanlegar) hamingjuóskir með áfangann
- (Innilegar/Hjartanlegar) hamingjuóskir með ferminguna/siðfestuna
- (Innilegar/Hjartanlegar) hamingjuóskir þennan stóra áfanga
- (Innilegar/Hjartanlegar) hamingjuóskir þennan stóra áfanga í lífinu
- (Innilegar/Hjartanlegar) hamingjuóskir með þessi merku tímamót
Miðja
Eftir hamingjuóskirnar er gott að koma með einhverja persónulega kveðju til fermingarbarnsins. Hér má auðvitað velja fleiri en einn hlut til að setja í kortið. Það er líka fallegt að skrifa stutt ljóð til fermingarbarnsins eða finna fallegan texta úr Biblíunni, Hávamálum eða öðru trúarriti, eftir því sem við á. Á heimasíðu Ásatrúarfélagsins er hægt að finna kvæði sem gætu verið við hæfi í siðfestukort. Hér eru hugmyndir að alls kyns kveðjum til fermingarbarnsins:
- Bjarta framtíð
- Bjarta og gæfuríka framtíð
- Ég vona að þú eigir [yndislegan/frábæran] dag
- Ég óska þér velfarnaðar í framtíðinni
- Ég óska þér velfarnaðar um aldur og ævi
- Ég óska þér velfarnaðar um ókomna tíð
- Ég óska þér gæfuríkrar framtíðar
- Guð gefi þér [fallega/bjarta] og [gleðiríka/gæfuríka] framtíð
- Lifðu heil/heill
- Með ósk um [bjarta/gæfuríka] framtíð
- Með von um [bjarta/gæfuríka] framtíð
- Megi dagurinn verða þér ógleymanlegur
- Megi gleði og gæfa fylgja þér alla tíð
- Megi gleði og gæfa fylgja þér um ókomna tíð
- Megi gleði og gæfa fylgja þér um aldur og ævi
- Megi gleði og gæfa fylgja þér í framtíðinni
- Megi gleði og gæfa fylgja þér um alla framtíð
- Megi gleði og gæfa fylgja þér og þínum alla tíð
- Megi gleði og gæfa fylgja þér og þínum um ókomna tíð
- Megi gleði og gæfa fylgja þér og þínum um aldur og ævi
- Megi gleði og gæfa fylgja þér og þínum í framtíðinni
- Megi gleði og gæfa fylgja þér og þínum um alla framtíð
- Megi góður Guð blessa þig og varðveita um alla framtíð
- Megi góður Guð blessa þig og varðveita um ókomna tíð
- Megi góður Guð blessa þig og varðveita um aldur og ævi
- Megi góður Guð blessa þig og varðveita allt tíð
- Megi allt ganga þér í haginn í framtíðinni
- Megi allt ganga þér í haginn alla tíð
- Megi allt ganga þér í haginn um aldur og ævi
- Megi allt ganga þér í haginn um alla framtíð
- Megi allt ganga þér í haginn um ókomna tíð
- Megi lífið leika við þig alla tíð
- Megi lífið leika við þig um ókomna tíð
- Megi lífið leika við þig um alla framtíð
- Megi trúin verða þér hvatning og styrkur á lífsleiðinni
- Vonandi áttu [yndislegan/frábæran] dag
- Vonandi verður dagurinn jafn [yndislegur/skemmtilegur/frábær] og þú ert
- Vonandi verður dagurinn jafn [yndislegur/skemmtilegur/frábær] og þú ert alltaf
- Þú getur allt sem þú ætlar þér
Endir
Í lokin þarf að loka afmæliskveðjunni með t.d.:
- Bestu kveðjur, [nöfn]
- Bestu kveðjur frá [nöfn]
- Bestur kveðjur og hamingjuóskir frá [nöfn]
- Með kveðju, [nöfn]
- Kveðja, [nöfn]
- Kær kveðja, [nöfn]
- Þín vinkona/þinn vinur/þínir vinir/þínar vinkonur, [nöfn]
Og nafninu þínu/nöfnunum ykkar.
Nú ættir þú að geta sett saman góða kveðju til fermingarbarnsins fyrir fermingarkortið!
Hvað á ég að skrifa í fermingarkort? Read More »