cloe

Leikskólalóðir á höfuðborgarsvæðinu

Leikskólalóðir á höfuðborgarsvæðinu

prófið þær allar!

Velkomin í Leikskólaleitina 

Á höfuðborgarsvæðinu eru yfir 170 leikskólalóðir sem hægt er að heimsækja utan opnunartíma. Sumar eru stórar og opnar, aðrar litlar og krúttlegar.  

Leikskólaleitin er í grunninn mjög einföld hugmynd:

➡️ Prófið eins margar leikskólalóðir og þið getið.
➡️ Gefið leikskólalóðunum einkunn.
➡️ Finnið ykkar uppáhalds.
➡️ Sjáið hversu langt þið komist í leitinni.

Leikskólaleitin er skemmtilegt fjölskylduverkefni þar sem markmiðið er að prófa leikskólalóðir um allt höfuðborgarsvæðið. Á listanum má finna leikskóla í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi sem hægt er að heimsækja utan opnunartíma.

Þetta er einföld og ódýr fjölskylduafþreying sem hentar vel um helgar, skipulagsdaga eða þegar þarf bara að komast út með börnin og prófa ný leiksvæði. Fjölskyldur geta merkt við leikskólana sem þær hafa heimsótt, gefið þeim einkunn og séð hversu langt þær komast í Leikskólaleitinni.

Leikskólalóðirnar eru ótrúlega fjölbreyttar. Sumar eru með stór leiktæki og opið leiksvæði á meðan aðrar leynast inni í rólegum hverfum með skemmtilegu umhverfi fyrir börn á öllum aldri, sérstaklega 2–6 ára.

Markmiðið með Leikskólaleitinni er að hvetja fjölskyldur til útivistar, hreyfingar og þess að uppgötva nýja leikskóla og leiksvæði á höfuðborgarsvæðinu.

Athugið að á listanum eru bæði leikskólar reknir af sveitarfélögunum og einkareknir leikskólar. Það er ekki öruggt að hægt sé að leika á lóðum þeirra einkareknu.

Þetta getur gert sumar barnanna ógleymanlegt og skapað virkilegar góðar minningar þrátt fyrir að það sé í raun og veru verið að gera eitthvað mjög einfalt og ódýrt. 

🏆 Hversu langt komist þið?

5 leikskólar – Grænjaxlar

10 leikskólar – Leikskólaleitarbyrjendur
25 leikskólar – Rennibrautarprófarar
50 leikskólar – Leikskólafarar
75 leikskólar – Leiksvæðakönnuðir

100 leikskólar – Sandkassasérfræðingar

125 leikskólar – Leikskólasérfræðingar

150 leikskólar – Leikskólameistarar
Allir á höfuðborgarsvæðinu – Goðsagnir Leikskólaleitarinnar 👑

Góða skemmtun!

Leikskólalóðir á höfuðborgarsvæðinu Read More »

Pökkunarlisti fyrir ferðina

Pökkunarlisti fyrir ferðina

Það getur oft fylgt því mikil streita að pakka niður fyrir ferðalög, sérstaklega þegar öll fjölskyldan fer með. 

Oft gleymist eitthvað eða að maður tekur alltof mikið með sér!

Þess vegna bjuggum við til nýtt verkfæri hér á Heimilisvefnum:

Pökkunarlisti fyrir ferðina

Þetta er einfaldur og snjall listi sem aðlagast hverri ferð fyrir sig eftir:

  • tegund ferðar
  • gistingu
  • fjölda ferðalanga

og hjálpar þér að muna það sem skiptir máli, án þess að ofpakka.

Þú getur:
✔️ hakað við það sem er komið í töskuna
✔️ fjarlægt það sem á ekki við
✔️ bætt við eigin hlutum

Hvort sem þú ert að fara í útilegu, borgarferð, sólarlandaferð eða í bústað, þá ætti þetta að gera niðurpökkunina aðeins auðveldari.

Þú getur prófað listann hér:
Pökkunarlisti fyrir ferðina

 

Vonandi nýtist þetta vel og sparar smá stress fyrir ferðirnar í sumar!

Pökkunarlisti fyrir ferðina Read More »

Bæjarhátíðir og viðburðir 2026

Bæjarhátíðir 2026

Bæjarhátíðir og viðburðir 2026

Hoppukastalar, skrúðgöngur, tónleikar, grilllykt í loftinu, kvöldvaka og alls konar skemmtun fyrir krakka og fullorðna. Svona eru íslenskar bæjarhátíðir! Hér má finna allar staðfestar bæjarhátíðir landsins á einum stað. Hátíðir og viðburðir bætast við reglulega eftir því sem þær staðfestast.

Bæjarhátíðir og viðburðir 2026 Read More »

Kanasta

Kanasta - spilareglur

Kanasta er skemmtilegt og krefjandi spil fyrir 2-6 spilara sem spilað er með venjulegum spilastokkum. Það er mörgu leyti líkt rommý og öðrum spilum þar sem markmiðið er að safna spilum með sama gildi. Spilið hentar mjög vel fyrir spilakvöld í bústaðnum. 

Markmið spilsins

Markmið spilsins er að safna stigum með því að leggja niður samstæður, þ.e. þrjú eða fleiri spil með sama gildi og reyna að búa til kanöstur. Það eru samstæður með sjö spilum af sama gildi (t.d.: sjö fjarkar eða sjö áttur). 

Spilið er yfirleitt spilað þar til lið eða spilari nær 5000 stigum.

Fjöldi spilara

Algengasta útgáfan af Kanöstu er spiluð með fjórum spilurum en einnig eru til útgáfur fyrir tvo og þrjá spilara.

 

Spilin

Notaðir eru: Tveir spilastokkar (52 spil hvor) og allir jókerar. Samtals eru því 108 spil í spilinu.

 

Uppsetning spilsins
  1. Hver spilari fær 11 spil á hendi.

  2. Restin af spilunum myndar stokk á grúfu á miðju borðinu.

  3. Einu spili er snúið upp og byrjar kastbunkann (þar sem spilurum er kastað).

Gangur spilsins

Í hverri umferð gerir spilari þrjú atriði:

  1. Dregur spil, annað hvort:

    • eitt nýtt úr bunkanum

    • eða tekur allan kastbunkann (ef reglur leyfa)

  2. Leggur niður alla rauða þrista ef þeir eru á hendi

  3. Leggur niður samstæður (ef vill og skilyrði eru uppfyllt)

  4. Kastar einu spili efst á kastbunkann

Síðan tekur næsti spilari við.

Samstæður

Samstæða eru þrjú eða fleiri spil með sama gildi.

Dæmi:

  • 4♥ 4♠ 4♦

  • 9♣ 9♦ 9♠

Það má einnig nota jókera eða tvista (lausaspil) sem staðgengla.

Lausaspil

Lausaspil í Kanösta eru:

  • Tvistar 

  • Jókerar

Þau geta staðið fyrir önnur spil, en það mega aldrei vera fleiri lausapil en venjuleg spil í samstæðu.

Dæmi:

  • 9♣ 9♦ 2♠ – er leyfilegt

  • 7♠ 2♦ Jóker – er ekki leyfilegt

Kanöstur

Samstæða með 7 eða fleiri spilum af sama gildi kallast kanasta.

Kanasta er til í tveimur gerðum:

  • Hrein kanasta – hún inniheldur aðeins venjuleg spil

  • Blönduð kanasta – inniheldur eitt-þrjú lausaspil

Lið má ekki loka spilinu (klára spilin sín) nema það eigi að minnsta kosti eina kanöstu.

 

Að taka kastbunkann

Spilari má taka allan kastbunkann ef:

  • efsta spilið passar við tvö samskonar spil á hendi, þannig að hægt sé að mynda samstæðu

  • efsta spilið passar við eitt samskonar spil á hendi og eitt lausaspil
  • eða ef spilið passar við samstæðu sem spilarinn hefur þegar lagt niður

Ekki má taka kastbunkann ef efsta spilið er lausaspil eða svartur þristur.

Að loka spilinu

Spilinu lýkur þegar spilari:

  • hann eða liðið hans á að minnsta kosti eina kanöstu

  • og hann kastar síðasta spilinu sínu í kastbunkann eða leggur niður á borðið

Ef enginn hefur náð að loka spilinu verður næsti spilari að taka upp allan kastbunkann ef hann getur og halda áfram með sína umferð. Þetta getur gengið koll af kolli þar til ekki er hægt að taka upp kastbunkann lengur. Þá lýkur spilinu.

Síðan eru stigin talin saman.

Stigagjöf

Gildi spilanna
  • 3–7 = 5 stig

  • 8–K = 10 stig

  • Ásar og tvistar = 20 stig 

  • Jókerar = 50 stig

  • Hver rauður þristur = 100 stig, 
  • ef lið nær öllum fjórum rauðu þristunum = 800 stig
Bónusstig
  • Hrein kanasta = 500 stig

  • Blönduð kanasta = 300 stig

  • Að loka spilinu = 100 stig

Spil sem spilari situr eftir með á hendi teljast sem mínusstig.

Eins og áður kom fram er Kanasta yfirleitt spiluð upp í 5000 stig, en spilarar geta vissulega komið sér saman um annað.

Aðrar útgáfur

Þessi útgáfa af spilinu er fyrir 4 spilara sem spila þá í tveimur liðum. 

Ef tveir spila saman eru gefin 15 spil í byrjun.

Ef þrír spila saman eru gefin 13 spil í byrjun.

Ef sex spila saman eru gefin 13 spil í byrjun en notaðir eru þrír spilastokkar og sex jókerar. Tveir og tveir spila saman. Fimm rauðir þristar gefa 1000 stig, sex rauðir þristar gefa 1200 stig. Einnig er hægt að hafa þrjá og þrjá í liði.

 

 

Kanasta Read More »

Hvað get ég gert með barninu í fæðingarorlofinu? – veturinn ’25-’26

Hvað get ég gert með barninu í fæðingarorlofinu? - veturinn '25-'26

Fyrir mörgum er fæðingarorlofið dásamlegur tími þar sem maður kynnist litla barninu sínu. Fyrir öðrum er þetta krefjandi tími. Sumum leiðist í fæðingarorlofinu, finnst lítið að gera og dagarnir allir eins. Það þarf alls ekki að vera svoleiðis. Það er margt hægt að gera með barninu í fæðingarorlofinu. Heimilisvefurinn hefur tekið saman nokkra hluti sem hægt er að gera með 0-2 ára börnum – utan heimilisins. Endilega sendið skilaboð ef þið vitið um eitthvað fleira skemmtilegt. Á listana bætast við hugmyndir um leið og þær uppgötvast.

Rustic Minimal Wedding Print Banner (2)
Austurland

Fjarðabyggð

Leikskólalóðir í Fjarðabyggð.

Sundlaugar í Fjarðabyggð. 

Múlaþing

Foreldramorgnar í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju á fimmtudögum kl. 10-12, Hörgsási 4.

Leikskólalóðir í Múlaþingi.

Vopnafjörður

Leikskólinn Brekkubær.

Höfuðborgarsvæðið
Foreldramorgnar og krílastundir

Margir staðir bjóða upp á foreldramorgna eða krílastundir þar sem börn og foreldrar geta komið saman og hitt önnur börn og foreldra þeirra. Hér eru þeir viðburðir sem standa foreldrum og börnum til boða eftir vikudögum.

Mánudagar

Þriðjudagar

Miðvikudagar

Fimmtudagar

Föstudagar

Laugardagar

Sunnudagar

Göngutúrar með vagn eða kerru

Hér eru hugmyndir að fallegum stöðum á höfuðborgarsvæðinu til að fara í göngutúr með barnið í vagni eða kerru, svona þegar hverfið þitt er orðið leiðigjarnt og þú þarft tilbreytingu.

  • Borgarholt í Kópavogi
  • Elliðaárdalurinn í Reykjavík
  • Fossvogurinn og Fossvogsdalur í Reykjavík/Kópavogi
  • Grasagarðurinn í Laugardalnum í Reykjavík
  • Grótta á Seltjarnarnesi
  • Guðmundarlundur í Kópavogi
  • Hallargarðurinn í Reykjavík
  • Hlíðargarður í Kópavogi
  • Klambratún í Reykjavík
  • Kópavogsdalur í Kópavogi
  • Landakotstún í Reykjavík
  • Laugardalurinn í Reykjavík
  • Miðbær Hafnarfjarðar
  • Miðbær Reykjavíkur
  • Miðsvæði Efra-Breiðholts í Reykjavík
  • Seljatjörn í Seljahverfi í Reykjavík
  • Tjörnin og Hljómskálagarðurinn í Reykjavík
  • Víðistaðatún í Hafnarfirði
  • Úlfarsárdalur í Reykjavík
  • Öskjuhlíð í Reykjavík

Svo er auðvitað alltaf hægt að kanna nýtt hverfi.

Leiksvæði og önnur afþreying

Staðir sem bjóða upp á leiksvæði eða afþreyingu fyrir 0-2 ára börn. 

Veitingastaðir og kaffihús

Veitingastaðir og kaffihús með barnasvæðum eða öðru sem hentar eða vekur áhuga 0-2 ára barna.

Rustic Minimal Wedding Print Banner (2)
Norðurland

Akureyri

Foreldramorgnar í Glerárkirkju alla fimmtudaga kl. 10-12, Bugðusíðu 3.

 

Húsavík

Foreldramorgnar í Húsavíkurkirkju á mánudögum.

 

Sauðárkrókur

Foreldramorgnar í Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju alla fimmtudaga kl. 10-12.

Suðurland og Suðurnes

Reykjanesbær

Bókasafn Reykjanesbæjar er með barnahorn með bókum og sætum.

Fjölskyldudagar á Bókasafni Reykjanesbæjar á laugardögum.

Foreldramorgnar á Bókasafni Reykjanesbæjar á fimmtudögum kl. 11.

Krílakrútt í safnaðarheimilinu Innri Njarðvík á þriðjudögum kl. 10:00-11:30.

Opni leikskólinn Memmm á Bókasafni Reykjanesbæjar, aðalsafni, kl. 13-15 á mánudögum og kl. 10-12 á föstudögum

Leikskólalóðir í Reykjanesbæ.

Sundlaugar í Reykjanesbæ.

Ungbarnasund í Reykjanesbæ. Skráning nauðsynleg.

Selfoss

Foreldramorgnar í Selfosskirkju á miðvikudögum kl. 11-12:30, Kirkjuvegi.

Suðurnesjabær

Foreldramorgnar í Kiwanishúsinu í Garði alla miðvikudaga kl. 10:30-12/12:30, Heiðartúni 4.

Fjöruferð á Garðskaga.

Leikskólalóðir í Suðurnesjabæ.

Sundlaugar í Suðurnesjabæ.

Þorlákshöfn

Foreldramorgnar í Þorlákskirkju á miðvikudögum kl. 10-12, Skálholtsbraut.

Vesturland og Vestfirðir

Akranes

Foreldramorgnar á Bókasafni Akraness á fimmtudögum kl. 10-12.

Ísafjarðarbær

Foreldramorgnar á Bókasafninu á Ísafirði á tveggja-þriggja vikna fresti.

Leikskólalóðir í Ísafjarðarbæ.

Ef þú veist um fleiri staði sem bjóða upp á eitthvað fyrir þessi allra yngstu eða sérð að sumt á ekki við lengur skaltu endilega senda okkur línu á heimilisvefurinn@heimilisvefurinn.is.

Hvað get ég gert með barninu í fæðingarorlofinu? – veturinn ’25-’26 Read More »

Sundlaugar á Íslandi

Sundlaugar Íslands

– áskorun fyrir fjölskylduna

Við erum einstaklega heppin hér á Íslandi, sama hvort þú ert í miðbæ Reykjavíkur eða í óbyggðum Hornstranda, þá er næsta sundlaug líklega ekki langt undan. Þær eru alls staðar – sumar eru litlar náttúrulaugar sem lítið hefur verið átt við, aðrar nánast heill sundlaugargarður með nokkrum rennibrautum og pottum.
Flestum krökkum þykir afskaplega gaman í sundi, enda er dásamlegt að leika sér í vatni. Því er þetta tilvalin hugmynd fyrir sumarfríið:
Hvers vegna ekki að taka áskorun og reyna að fara í allar sundlaugar landsins – eða sem flestar?

Áskorunin er einföld. Prófið allar sundlaugarnar á listanum, engin tímamörk, og gefið þeim síðan einkunn. 

Sundlaugarnar eru um 110 talsins, dreifðar um allt landið, og þetta verkefni gæti vel tekið mörg sumur – sem gerir það bara enn skemmtilegra. Það er auðvitað hægt að sleppa þeim sundlaugum sem höfða ekki til ykkar. Sem dæmi eru nokkrar laugar á landinu litlar innilaugar sem eru kannski ekki mjög spenanndi fyrir alla.
Í þessari áskorun teljast eingöngu sundlaugar sem eru opnar almenningi og með viðunandi klefaaðstöðu – það eru sem sagt ekki náttúrulaugar án aðstöðu og ekki ný og dýr baðlón. Flestar lauganna eru reknar af sveitarfélögum, en nokkrar eru á vegum ferðaþjónustuaðila.

Þú getur sótt PDF með korti og gátlista yfir allar laugar – merkt við þær sem þú hefur heimsótt, gefið þeim einkunn og skipulagt næstu ferð.

Sæktu kortið hér, gátlistann hér og byrjaðu sundlaugaævintýrið!

Sundlaugar á Íslandi Read More »

Ævintýraferð um Bryggjuhverfið

Ævintýraferð um Bryggjuhverfið

Næsta ævintýraferð Heimilisvefsins er um Bryggjuhverfið, sem er hverfi á mörkum Grafarvogs og Árbæjar í Reykjavík. Hverfið er ekki vel þekkt en afskaplega skemmtilegt er að fara þar um. 

Heimilisvefurinn hefur útbúið kort af öllum leikvöllum hverfisins. Leikvellirnir eru númeraðir frá einum og upp í sex og er það tillaga að því hvernig hægt er að fara um hverfið og prófa að leika á öllum leikvöllunum. 

Gangan um hverfið er mjög auðveld, allt á jafnsléttu og fallegt útsýni blasir við á bryggjukantinum. 

Þar sem leikvellir hverfisins eru ekki nema sex talsins er þessi ævintýraferð ekki svo löng, en að vísu er hægt að gefa sér góðan tíma að skoða hverfið, prófa öll leiktækin á öllum leikvöllunum. Fyrir foreldra með mjög ung börn (undir 2-3 ára) er búið að merkja inn allar ungbarnarólur hverfisins á kortið.

Nokkrum reglum þarf að fylgja ef fara á í ævintýraferðina og þær eru að það er mjög mikilvægt að fara vel með öll leiktækin og bera virðingu fyrir umhverfinu og náttúrunni. Það er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og drasl og vera með sóðaskap. Margir leikvellirnir í þessari ævintýraferð eru á einkalóðum og því mjög mikilvægt að ónáða ekki íbúana í kring. Farið líka varlega, það er á ykkar ábyrgð ef þið eða börnin ykkar slasa sig í leiktækjum.

Náið í kortið af ævintýraferðinni hér:

Ævintýraferð um Bryggjuhverfið Read More »

Bæjarhátíðir og viðburðir 2025

Bæjarhátíðir og viðburðir 2025

Stór partur af íslenska sumrinu er að skella sér á bæjarhátíð eða aðra viðburði sem haldnir eru víða um land. Á bæjarhátíðunum er gjarnan stútfull dagskrá af viðburðum fyrir alla fjölskylduna. Oft eru bæjarhátíðirnar haldnar til að lokka brottflutta til að kíkja aftur á gamla bæinn sinn en það þýðir ekki að það sé ekki hægt að prófa nýja staði sem maður hefur enga tengingu við. Þá er bara um að gera að panta gistingu eða taka fram útilegubúnaðinn. Ef þú veist ekki hvað er gott að taka með í útileguna eru hér meiri upplýsingar um það.

Heimilisvefurinn hefur tekið saman lista yfir bæjarhátíðir og viðburði sem staðfest eru í ár. Listinn uppfærist eftir því sem fleiri hátíðir og viðburðir staðfestast.

Apríl
Maí
Júní

17. júní

Þjóðhátíðardagurinn haldinn hátíðlegur víðs vegar um landið

Júlí
Ágúst
September

5.-7. september

Ljósanótt í Reykjanesbæ

Október

3.-5. október

Eyrarrokk á Akureyri

Bæjarhátíðir og viðburðir 2025 Read More »

Hvað er hægt að gera með krökkum á vorin?

Hvað er hægt að gera með krökkum á vorin?

Vorið er dásamlegur tími sem býður upp á svo margt skemmtilegt til að gera með krökkunum. Vissulega má búast við vondu veðri, rigningu og snjó en svo koma líka fínir sólardagar á milli, sérstaklega þegar líða fer á árstíðina.

Heimilisvefurinn hefur búið til lista með fullt af hlutum til að gera með krökkunum á vorin, hvort sem það þarf að vera inni eða úti. Listinn er hugsaður þannig að hægt sé að gera hlutina nánast hvar sem er. Þess vegna eru t.d. Kringlan eða Klifurhúsið eða aðrir ákveðnir staðir ekki á listanum. Það sem fer á listann á að vera hægt að gera sama hvort þú býrð í Mývatnssveit, New York eða á Flateyri.

Miðað er við að vorið sé sirka mars, apríl og maí og að snjórinn sé farinn eða að fara.(Já, við vitum að það er ekki alltaf þannig samt!) Líklega er enn kalt þessa mánuðina en þó farið að hlýna aðeins seinni helminginn. 

Hægt er að nýta sér þennan lista á marvíslegan hátt. Í fyrsta lagi er hægt að skoða listann og velja eitthvað sem hentar og öllum líst vel á að gera. Í öðru lagi er hægt að skipuleggja sig og búa til einhvers konar „vorsamverudagatal“ og velja þá spennandi hluti af listanum til að setja á dagatalið. Þriðja hugmyndin væri að búa til „buckelista“ fyrir vorið. Þá þurfa hlutirnir ekki að gerast á ákveðnum dögum en listinn yfir hluti til að gera er til staðar. Enn önnur hugmynd væri að skrifa niður hugmyndir sem manni finnst spennandi á miða og setja í krukku og draga síðan þegar hentar.

Líklega bætist við listann með tímanum þegar við finnum eitthvað nýtt og spennandi að gera. Á listanum eru núna 139 hlutir til að gera með krökkunum á vorin:

Álfahús

Eitt af því sem hægt er að gera með krökkunum er að smíða hús fyrir álfa. Krakkarnir geta túlkað þetta eins og þau vilja og hægt er að búa það til úr hverju sem er.

Baka

Á vorin er hægt að baka saman, t.d. kanilsnúða, pizzu, smákökur eða vorköku.

Baksturskeppni

Ef þið viljið taka baksturinn á næsta stig er hægt að fara í baksturskeppni.

Bíltúr

Í fallegu vorveðri er gaman að fara í bíltúr.

Bíó eða bíómynd

Þegar rigning og vont veður er úti getur verið gaman að fara í bíó eða horfa á bíómynd heima. Hægt er að horfa á uppáhalds bíómynd foreldra úr æsku eða prófa t.d. Disneyáskorun Heimilisvefsins.

Borðspil

Gaman er að taka spilakvöld og spila borðspil. Einnig er hægt að búa til sitt eigin borðspil.

Bókamerki

Það er auðvelt að búa til bókamerki og hvetja þá krakkana enn frekar til að lesa heima. Það er vel hægt að finna bókamerki á netinu til að prenta út og lita eða búa þau alveg til frá grunni.

Bókasafn

Vont veður? Hvernig væri að kíkja á bókasafnið?

Brandarar

Segið hvort öðru brandara og búið til nýja.

Brunch

Undirbúið brunch heima eða farið út að borða í hádeginu.

Búningar

Það er gaman að fara í búninga. 

Dagbók

Það getur verið gaman að halda dagbók og gott fyrir sálina. Dagbækur geta verið alls konar. 

Dansa

Dansa, hvað er betra en að dansa? Búa til dans, dansa eftir vídeóum, læra nýja dansa eða gömlu dansana.

Drullumalla

Vorið er mjög góður tími til að fara út með potta, fötur, skóflur og fleira til að búa til drullumalla og drullukökur því yfirleitt er búið að rigna nýlega.

Dulmál

Búið til ykkar eigið dulmál og prófið að skrifa nokkur leynileg skilaboð.

Dúkkuhús

Til þess að búa til dúkkuhús þarf ekki meira en pappakassa, blöð, lím, liti og skæri. En auðvitað er hægt að fara enn lengra fyrir þau sem vilja. Hugmyndir má finna á Pinterest.

Dúkkulísur

Hægt er að búa til einfaldar dúkkulísur með aðeins pappír, skæri og liti. Það er svo hægt að búa til alls konar föt á þær. Ef maður er ekki mjög listrænn er hægt að prenta út tilbúnar dúkkulísur og föt til að klippa út og lita.

Elda saman

Eldið saman einhverja góða vorlega uppskrift og njótið.

Eltingaleikur

Segir sig sjálft. Þarfnast ekki frekari útskýringa.

Eurovision

Allt vorið (og reyndar síðan í janúar) er Eurovisionvertíð. Hægt er að fylgjast með undankeppnum í öðrum löndum allt fram um miðjan mars. Eftir það er hægt að spá og spekúlera í lögunum. Horfa á umfjallanir og viðbrögð við lögunum og búa til sína topplista. Þegar Eurovision nálgast í maí er hægt að fara að útbúa stigablöð, skreyta húsið og útbúa veitingar fyrir stóra kvöldið.

Farfuglar

Í mars byrja fyrstu farfuglarnir að láta sjá sig. Hægt er að fræðast um þá og fara svo í fuglaskoðunarleiðangur og reyna að finna þá.

Feluleikur

Feluleikur er alltaf skemmtilegur, hvort sem hann er inni eða úti. Það er hægt að fela sig sjálf eða hluti fyrir aðra til að finna. 

Fingramála

Takið fram fingramálningu og málið og málið og málið.

Fjallganga

Þegar veðrið er farið að batna er tilvalið að draga alla fjölskylduna með í fjallgöngu.

Fjársjóðsleit

Búið til fjársjóðskort sem beinir ykkur að leyndum fjársjóði.

Fjölskyldufáni

Hannið og búið til fána fyrir fjölskylduna ykkar.

Fjöruferð

Það er alltaf gaman í fjöruferð. Yngstu börnin elska að henda steinum í sjóinn. Eldri börn geta búið til stórkostlega kastala og fundið skeljar og fleira.

Flóamarkaður

Leitið að földum fjársjóðum á flóamörkuðum og gerið góð kaup.

Flugdreki

Það er vel hægt að fljúga flugdrekum á vorin. Yfirleitt er nægur vindur.

Flöskuskeyti

Setjið flöskuskeyti á flot og sjáið hvort það endi ekki á einhverjum fjarlægum stað í framtíðinni.

Fótbolti

Farið út í fótbolta eða kíkið á fótboltaleik.

Frisbí / Frisbígolf

Gaman er að leika sér með frisbídiska og þegar þið eruð orðin nokkuð klár er hægt að fara á næsta frisbígolfvöll og keppa.

Frostpinnar

Í lok vorsins er stundum orðið pínu hlýtt. Þá er hægt að búa til frostpinna heima.

Frysta leikföng

Fyrir yngstu börnin er hægt að frysta fötu með alls kyns dóti í vatni og leyfa þeim svo að reyna að ná hlutunum út aftur. Ef þið viljið að verkefnið endist extra lengi er hægt að láta þau nota spreybrúsa til að vinna verkið.

Fuglafit

Það sem þarf er band og leiðbeiningar til að byrja með.

Fuglahús

Smíðið fuglahús í garðinn fyrir fugla sumarsins.

Föndra

Finnið ykkur eitthvað föndur á Pinterest eða úti í búð og föndrið eins og enginn sé morgundagurinn.

Gefa gamalt dót

Takið til í herbergjunum ykkar og gefið leikföng og bækur sem ekki er verið að nota lengur og gefið áfram.

Gefa öndunum

Gefið öndunum (gróft) brauð að borða og njótið útiverunnar.

Geocaching

Náið ykkur í Geochaching-appið og þá getið þið tekið þátt í fjársjóðsleitinni. Appið vísar ykkur veginn að leyndum stöðum í næsta nágrenni við ykkur.

Goggur

Búið til gogg og prófið á hvort öðru.

Góðverk

Gerið eitthvert góðverk. Manni líður svo vel á eftir.

Granóla

Búið ykkur til granóla/múslí til að eiga í morgunmat.

Grillveisla

Skipuleggið og haldið grillveislu. Það er hægt að bjóða gestum ef maður vill.

Grímugerð

Það er hægt að búa til alls kyns grímur, m.a. úr gipsi. Ef maður treystir sér ekki í það er hægt að prenta út tilbúnar grímur, klippa þær út og lita.

Gæludýrabúð

Ef það er gæludýrabúð í nágrenninu er hægt að fara að skoða dýrin.

Göngutúr

Farið í göngutúr á fallegum stað. Það gerir svo mikið fyrir mann. Hægt er að fara í göngutúr í kirkjugarði, í skógi, með kíki og margt fleira.

Halda upp á hátíðir vorsins

Á vorin er haldið upp á fjölmargar hátíðir víðs vegar um heiminn. Það má vel taka þátt í þessum hátíðum eða fræðast um þær í það minnsta.

Alþjóðlegur dagur kvenna er haldinn hátíðlegur þann 8. mars. Dagurinn er tileinkaður réttindabaráttu kvenna og jafnrétti kynjanna. 

 

Dagur heilags Patreks er haldinn hátíðlegur þann 17. mars af Írum og afkomendum þeirra í öðrum löndum. Sennilega er þó mest gert úr deginum í Bandaríkjunum. 

 

Dagur jarðar er haldinn hátíðlegur þann 22. apríl ár hvert. Þessi dagur er helgaður fræðslu um umhverfismál.

 

Fyrsti apríl er haldinn hátíðlegur 1. apríl ár hvert með því að gabba aðra. Helst á að láta fólk hlaupa yfir þröskuld.

 

Holi er haldin á mismunandi tímum en oftast lendir hátíðin í mars. Holi er hátíð litanna og er haldin hátíðleg á Indlandi og í Nepal. Það tíðkast á Holi að strá um litadufti og sprauta með lituðu vatni.

 

Kváradagur er nýleg íslensk hátíð sem er haldinn á fyrsta degi einmánaðar (lok mars). Dagurinn er sambærilegur konudegi og bóndadegi en er dagur kynsegin fólks.

 

Mæðradagurinn er alþjóðlegur dagur mæðra og er hugsaður til að heiðra starf þeirra. Hann lendir yfirleitt í fyrri hluta maí á Íslandi.

 

Páskar eru yfirleitt haldnir í lok mars eða í apríl. Flestir fá a.m.k. fimm daga frí þessa daga því skírdagur, föstudagurinn langi og annar í páskum eru rauðir dagar. Margir ferðast þessa daga en aðrir hafa það notalegt með páskaegg uppi í sófa.

 

Sumardagurinn fyrsti er haldinn hátíðlegur á fyrsta degi Hörpu (lok apríl) sem er alltaf fimmtudagur og er lögbundinn frídagur á Íslandi. Hefð er að gefa börnum litla gjöf þennan dag sem hægt er að leika með úti. Þjóðtrúin segir einnig að ef sumar og vetur „frjósi saman“ boði það gott sumar.  Á sumum stöðum er dagskrá þennan dag eða einhverjir viðburðir.

 

Uppstigningardagur er annar rauður fimmtudagur að vori, oftast í maí. 

 

Verkalýðsdagurinn er haldinn hátíðlegur 1. maí hvert ár og þá fer verkalýðurinn í kröfugöngu. Dagurinn er frídagur.

 

Vorjafndægur lendir alltaf á tímabilinu 19.-21. mars. Á þessum degi eru nóttin og dagurinn jafnlöng. 

H. C. Andersen

Danski rithöfundurinn H. C. Andersen átti afmæli 2. apríl. Hann skrifaði fjölmörg heimsþekkt ævintýri, t.d. um prinsessuna á bauninni, litlu hafmeyjuna og ljóta andarungann. 

Heimsókn

Skellið ykkur í heimsókn til vina eða ættingja.

Heitt kakó

Það er ekki alltaf hlýtt á vorin. Stundum þarf maður bara að fá sér heitt kakó til að hlýja sér.

Hekla

Ef maður kann ekki að hekla er vel hægt að læra það á netinu í dag.

Hestbak

Þetta gæti verið dýrt en mjög gaman. Skellið ykkur á hestbak. 

Hjóla

Farið út að hjóla í góðu veðri. Allir hafa gott af smá útiveru og hreyfingu.

Hjólabraut eða hjólabrettarampur

Víðs vegar má finna hjólabrautir eða hjólabrettarampa. 

Hjólaferð

Farið í hjólaferð í góðu veðri. Ekki er verra að stoppa einhvers staðar og borða nesti.

Hjólaskautar eða línuskautar

Vorið er fullkominn tími til að taka fram hjóla- eða línuskautana.

Hlaupa

Farið út að hlaupa í góðu vorveðri eða takið þátt í kapphlaupi.

Hlaupahjól

Farið út með hlaupahjólið og hjólið um.

Hljóðfæragerð

Til þess að búa til hljóðfæri þarf aðeins smá sköpun og ímyndunarafl (eða Pinterest). 

Hoppa

Annað hvort er hægt að hoppa í pollum eða ærslabelg.

Húsdýragarður/sveitaferð

Ef húsdýragarður leynist í nágrenninu er gaman að kíkja þangað á vorin eða ef maður hefur kost á því að fara í sveit er það líka mjög skemmtilegt.

Íþróttaleikur

Skellið ykkur á íþróttaleik.

Ísgerð

Það er ekkert erfitt að búa til ís heima.

Jóga

Það má finna fjölmörg vídeó á netinu með krakkajóga.

Kaffiboð

Bakið kökur og bjóðið gestum í heimsókn.

Kaffihús/bakarí

Það er gaman að gera sér dagamun og fara á kaffihús eða í bakarí og fá sér eitthvað gott.

Karaoke

Það þarf ekkert endilega að fara á karaokestað. Það er líka hægt að syngja með myndböndum á netinu.

Koddaslagur

Segir sig sjálft. Það sem þarf eru a.m.k. tveir koddar.

Kokkakeppni

Fjölskyldan getur keppt í kokkakeppni og þá er hægt að sjá hver besti kokkur fjölskyldunnar er.

Kortagerð

Hægt er að búa til kort af hverfinu sínu, bænum eða ímyndað kort af ævintýralandi.

Kósýkvöld

Það er fátt meira kósý en kósýkvöld með fjölskyldunni. Snakk, nammi, spil eða bíómynd. 

Kríta

Þegar sólin skín er gaman að fara út að kríta á stéttina.

Krossgátur

Hægt er að leysa krossgátur saman en svo er líka hægt að búa til sínarn eigin krossgátur.

Kubba

Það er alltaf gaman að kubba.

Körfubolti

Öll fjölskyldan getur farið saman út í körfubolta. Ef þið nennið ekki hefðbundnum körfubolta er hægt að fara í asna/stinger.

Landslagsmynd

Í góðu veðri er yndislegt að sitja úti og teikna landslagið.

Lautarferð

Ef hlýtt er í veðri þetta vorið er hægt að skella sér í lautarferð með eitthvað gott nesti.

Freysteinn G. Jónsson
Lego

Möguleikarnir með lego eru nánast óteljandi. Það er t.d. hægt að byggja ein stóran kastala og kubbarnir leyfa, kubba eftir myndum eða búa til völundarhús. Hér er mjög sniðugt að nota síður eins og Pinterest.

Leikrit

Það er gaman að fara í leikhús. En ef ekkert leikhús er nálægt er líka hægt að semja leikrit heima og leika í því.

Leikir úti

Fjölskyldan getur farið saman út í leiki. Foreldrarnir geta rifjað upp gamla leiki síðan úr æsku eða fundið nýja á netinu.

Leira

Það er alltaf gaman að leira saman. Ef það er ekki til leir er líka hægt að búa til leir.

Leita að fyrstu vorblómunum

Síðla vors er hægt að fara í könnunarleiðangur um næsta nágrenni að leita að fyrstu vorblómunum.

Lesa

Það er hægt að lesa bækur, tímarit, fyrir hvert annað, í baði, úti á svölum, taka þátt í lestraráskorun eða lestrarbingói og margt fleira.

Lita

Með góðum litum er hægt að lita hvað sem er. Það er hægt að lita í litabókum, á blað eða prenta út litamyndir.

Hér eru nokkrar skemmtilegar síður með ókeypis litamyndum: Supercoloring, Monday Mandala, Crayola og Castle Arts.

Límonaði

Finnið uppskrift og prófið að búa til límonaði.

Ljóð

Semjið eða lesið ljóð.

Ljósmyndabingó

Farið í bingó og takið myndir af ákveðnum hlutum. Hægt er að finna alls kyns ljósmyndabingó á Pinterest.

Lystigarður

Ef einhver lysti- eða skrúðgarður er staðsettur nálægt ykkur er tilvalið að skoða hann að vori.

Mála

Það er hægt að mála ýmislegt, t.d. leirmuni, á blað eða steina sem þið finnið úti.

Minigolf

Ef einhver minigolfvöllur er staðsettur í nágrenni við ykkur er tilvalið að nýta góðan vordag í minigolf.

Minningabók

Ef þið eigið ekki minningabók nú þegar er tilvalið að byrja á slíkri bók núna.

Mjólkurhristingur

Það er vel hægt að búa sér til góðan mjólkurhristing heima fyrir.

Myndaratleikur

Búið til myndaratleik. Það er ekki flókið en krefst örlitlar fyrirhafnar. 

Naglalakk

Handsnyrting og naglalökkun á slökunardegi.

Náttfatapartý

Skellið ykkur í náttfötin og haldið náttfatapartý.

Ný uppskrift

Finnið nýja og girnilega uppskrift í bók eða á netinu og prófið hana.

Origami

Á Youtube er hægt að læra alls konar origamibrot.

París

Takið fram krítarnar og farið út í parís.

Páskaskraut

Föndrið eða kaupið páskaskraut og skreytið heimilið fyrir páskana.

Perla

Það er alltaf notalegt að perla.

Prjóna

Prjónið eitthvað sniðugt. Það eru óteljandi hugmyndir á netinu og ef þið kunnið ekki að prjóna eru mjög góðar leiðbeiningar á íslensku á Garnstudio.

Puttastríð

Einn, tveir, þrír, puttastríð!

Púsla

Fátt er huggulegra en að sitja inni í vondu veðri og púsla saman.

Ratleikur

Búið til eða finnið ykkur ratleik til að taka þátt í. Víða eru til tilbúnir ratleikir á vegum t.d. sveitarfélaga og á Turfhunt-appinu.

Rigning (leika í)

Skellið ykkur út í rigininguna og leikið ykkur.

Róló

Farið út á rólóinn í hverfinu eða finnið ykkur nýjan í næsta hverfi eða bæ.

Rúlla sér

Rúllið ykkur niður brekkur og verðið börn aftur.

Safn

Ef það er leiðilegt veður eins og er stundum á vorin er tilvalið að vera inni á safni að skoða alls konar merkilega hluti.

Sauma

Með nál og tvinna er hægt að sauma alls konar hluti. Netið getur hjálpað mikið með hugmyndir og leiðbeiningar.

Sá fræjum

Á vorin er hægt að fara að sá fræjum fyrir sumarið. Krökkunum finnst oft mjög gaman að fá að taka þátt.

Sápukúlur

Það er aldrei leiðilegt að blása sápukúlur.

Semja lag

Semjið lag og flytjið.

Sippa/snúsnú

Ef veðrið er gott er hægt að fara út að sippa eða snúsnú, ef þið eruð nógu mörg.

Skartgripagerð

Það er hægt að búa til skartgripi úr alls kyns hlutum sem finnast á heimilinu, t.d. pasta og morgunkorni.

Skógarferð

Skógurinn er fallegur á vorin en það þarf að passa að það sé ekki búið að rigna mjög mikið áður en maður fer, þá eru stígarnir eitt drullusvað.

Skrifa bréf

Skrifið bréf til einhvers og setjið í póst.

Skrifa sögu

Skrifið saman sögu og lesið.

Skutlur

Búið til skutlur og sjáið hver flýgur lengst.

Skynjunarleikur

Á Pinterest er hægt að finna ótal hugmyndir að skynjunarleikjum fyrir yngstu börnin. Þeir þurfa ekki að vera flóknir, t.d. er hægt að setja vatn í fat og einhverja hluti úr eldhússkúffunni.

Skyrskál

Búið til ykkar eigin skyrskál heima.

Slímgerð

Á netinu er hægt að finna uppskriftir að slími.

Smoothie

Búið til smoothie eða annan frískandi drykk.

Snyrtivörugerð

Enn og aftur má finna ótal uppskriftir að alls kyns snyrtivörum til að búa til heima.

Sokkabrúður

Notið gömlu eða stöku sokkana og búið til brúður úr þeim.

Spila

Spilið á spil eða borðspil. Það er hægt að fá lánuð spil á bókasafninu og hafa spilakvöld.

Spurningaleikur

Búið til spurningaleik og bjóðið svo einhverjum að taka þátt.

Steinasafn

Vorið er tilvalinn tími til að byrja að safna steinum.

Strætóferð

Yngstu börnunum þykir oft mjög spennandi að fara í strætó.

Stuttmyndagerð

Skrifið handrit og búið til stuttmynd. Það er einnig hægt að nota stop-motion forrit/öpp til að búa til skemmtilegar stuttmyndir.

Sumarbústaður

Ef fjölskyldan hefur aðgang að bústað er tilvalið að fara eina ferð í sumarbústað að vori (eða fleiri).

Sund

Vorið er fullkominn tími til að fara í sund. Á sundlaugar.com er hægt að skrá sig inn og merkja við allar sem þið hafið nú þegar prófað. 

Taka til í fataskápum

Nú er góður tími til að taka til í fataskápum og gefa föt sem ekki eru í notkun lengur.

Taka vormyndir

Farið út í góða veðrið og takið nokkrar myndir.

Tefla

Einfalt og skemmtilegt.

Teikna

Teiknið hvað sem ykkur dettur í hug.

Tilraunir

Á netinu má finna ótal hugmyndir að tilraunum fyrir börn. Það er líka hægt að finna bækur á bókasafninu.

Tímahylki

Búið til tímahylki og geymið á góðum stað eða grafið. Svo má taka það upp eftir nokkur ár.

Tískusýning

Farið í fataskápinn eða búningakassann og klæðið ykkur upp og haldið tískusýningu.

Hvað er hægt að gera með krökkum á vorin? Read More »

Múskatkökur

Múskatkökur

Hér er uppskrift að dásamlegum jólasmákökum sem eru svolítið „old school“ en engu að síður mjög ljúffengar.

150 g mjúkt smjör eða smjörlíki

3 dl púðursykur

2 egg

4,5 dl hveiti

1 tsk matarsódi

1 tsk lyftiduft

1 tsk múskat

súkkulaðibitar

Aðferð:

  1.  Þeytið smjör og púðursykur ljóst og létt. Bætið eggjunum við og hrærið í um leið.
  2. Látið þurrefnin saman við og blandið.
  3. Látið deigkúlur á bökunarplötu með teskeiðum. Kúlurnar verða að vera litlar því kökurnar stækka mjög mikið í ofninum. 
  4. Stingið einum súkkulaðibita á hverja köku.
  5. Bakið í 5 mínútur við 220°C hita.

Múskatkökur Read More »