30 bíómyndir fyrir kósýkvöldið með 2-4 ára barni
30 bíómyndir fyrir kósýkvöldið með 2-4 ára barni Read More »
Það er laugardagskvöld og þið fjölskyldan ætlið að hafa kósýkvöld (eða hugsanlega dag í þessu tilfelli) og leyfa yngsta barninu að vaka aðeins lengur en venjulega. Þið ætlið að horfa á bíómynd sem hæfir ungu barni og vantar hugmyndir. Hér eru hugmyndir að þrjátíu slíkum myndum! Hægt er að prenta myndina út og haka svo við þær myndir sem búið er að horfa á.
30 bíómyndir fyrir kósýkvöldið með 2-4 ára barni Read More »
Fyrir mörgum er fæðingarorlofið dásamlegur tími þar sem maður kynnist litla barninu sínu. Fyrir öðrum er þetta krefjandi tími. Sumum leiðist í fæðingarorlofinu, finnst lítið að gera og dagarnir flestir eins. Það þarf alls ekki að vera svoleiðis. Það er margt hægt að gera með barninu í fæðingarorlofinu. Heimilisvefurinn hefur tekið saman nokkra hluti sem hægt er að gera með 0-2 ára börnum á höfuðborgarsvæðinu – utan heimilisins.
Margir staðir bjóða upp á foreldramorgna eða krílastundir þar sem börn og foreldrar geta komið saman og hitt önnur börn og foreldra þeirra. Hér eru þeir viðburðir sem sem stendur foreldrum og börnum til boða eftir vikudögum.
Mánudagar
Miðvikudagar
Föstudagar
Hér eru hugmyndir að fallegum stöðum á höfuðborgarsvæðinu til að fara í göngutúr með barnið í vagni eða kerru, svona þegar hverfið þitt er orðið leiðigjarnt og þú þarft tilbreytingu.
Staðir sem bjóða upp á leiksvæði eða afþreyingu fyrir 0-2 ára börn.
Veitingastaðir og kaffihús með barnasvæðum sem henta 0-2 ára.
Ef þú veist um fleiri staði sem bjóða upp á eitthvað fyrir þessi allra yngstu eða sérð að sumt á ekki við lengur skaltu endilega senda okkur línu á heimilisvefurinn@heimilisvefurinn.is.
Hvað get ég gert með barninu í fæðingarorlofinu? – Veturinn 2022-2023 Read More »
Ertu á leið í skírn eða nafngjöf og veist ekkert hvað þú átt að skrifa í kortið til elsku litla barnsins sem er að fara að fá nafnið sitt? Heimilisvefurinn hefur tekið saman nokkrar kveðjur sem skrifa má í skírnar- eða nafngjafarkort til að hjálpa þér við verkið.
Eins og með öll skrif er gott að byggja skírnar- eða nafngjafarkort þannig upp að þau hafi upphaf, miðju og endi. Í kortum er þó reyndar best að byrja á ávarpi til þess sem er að fá nafnið sitt, en það er líka hægt að flétta ávarpið inn í upphaf kortsins. Svo tekur við smá texti fyrir miðju kortsins til að gera það persónulegra og loks endar maður á einhvers konar kveðju og nafninu sínu. Hér fyrir neðan eru hugmyndir að ávörpum, hvað skrifa má í upphafi, miðjunni og í lokin.
Ólíkt öðrum kortum er yfirleitt ekki vitað nafn þess sem á að fá skírnar- eða nafngjafarkort. Athöfnin og veislan snýst jú út á það að tilkynna nafn barnsins. Í þessu tilfelli er t.d. hægt að skrifa:
Hér eru nokkrar uppástungur til að byrja skírnar- eða nafngjafarkortið. Það er vel hægt að flétta ávarpinu inn í þessar hamingjuóskir með því t.d. að segja „Innilega til hamingju með daginn elsku litla barn“.
Eftir hamingjuóskirnar er gott að koma með einhverja persónulega kveðju til barnsins. Hér má auðvitað velja fleiri en einn hlut til að setja í kortið. Það er líka fallegt að skrifa stutt ljóð til barnsins eða finna fallegan texta úr Biblíunni, Hávamálum eða öðru trúarriti, eftir því sem við á. Hér eru hugmyndir að alls kyns kveðjum til barnsins:
Í lokin þarf að loka afmæliskveðjunni með t.d.:
Og nafninu þínu/nöfnunum ykkar.
Hvað á ég að skrifa í skírnarkort? Read More »
Ertu á leið í brúðkaup og ert í vandræðum með að finna eitthvað til að skrifa í kortið? Heimilisvefurinn hefur tekið saman hugmyndir og leiðbeiningar að því hvernig og hvað er hægt að skrifa í brúðkaupskort.
Eins og með öll skrif er gott að byggja útskriftarkort þannig upp að þau hafi upphaf, miðju og endi. Í kortum er þó reyndar best að byrja á ávarpi til þess sem er að útskrifast, en það er líka hægt að flétta ávarpið inn í upphaf kortsins. Svo tekur við smá texti fyrir miðju kortsins til að gera það persónulegra, jafnvel þótt maður þekki manneskjuna ekki vel, og loks endar maður á einhvers konar kveðju og nafninu sínu. Hér fyrir neðan eru hugmyndir að ávörpum, hvað skrifa má í upphafi, miðjunni og í lokin.
Ávörp eru mis persónuleg og fer það allt eftir því hvernig þú þekkir manneskjuna.
Hér eru nokkrar uppástungur til að byrja brúðkaupskortið. Það er vel hægt að flétta ávarpið inn í þessar hamingjuóskir með því t.d. að segja „Innilega til hamingju með daginn elsku [nöfn] mín“.
Eftir hamingjuóskirnar er gott að koma með einhverja persónulega kveðju til verðandi brúðhjóna. Hér má auðvitað velja fleiri en einn hlut til að setja í kortið. Það er líka fallegt að skrifa stutt ljóð til þeirra sem eru að gifta sig. Hér eru hugmyndir að alls kyns kveðjum til brúðhjónanna:
Í lokin þarf að loka kveðjunni með t.d.:
Og nafninu þínu/nöfnunum ykkar.
Nú getur þú sett saman þína eigin persónulegu og flottu kveðju til brúðhjónanna!
Hvað á ég að skrifa í brúðkaupskort? Read More »
Ertu á leið í útskriftarveislu og ert í vandræðum með að finna eitthvað til að skrifa í útskriftarkort? Hvort sem manneskjan er að útskrifast úr grunn-, framhalds- eða háskóla þá eru hér hugmyndir og leiðbeiningar til að skrifa fallega kveðju í útskriftarkort.
Eins og með öll skrif er gott að byggja útskriftarkort þannig upp að þau hafi upphaf, miðju og endi. Í kortum er þó reyndar best að byrja á ávarpi til þess sem er að útskrifast, en það er líka hægt að flétta ávarpið inn í upphaf kortsins. Svo tekur við smá texti fyrir miðju kortsins til að gera það persónulegra, jafnvel þótt maður þekki manneskjuna ekki vel, og loks endar maður á einhvers konar kveðju og nafninu sínu. Hér fyrir neðan eru hugmyndir að ávörpum, hvað skrifa má í upphafi, miðjunni og í lokin.
Ávörp eru mis persónuleg og fer það allt eftir því hvernig þú þekkir manneskjuna.
Í lokin þarf að loka afmæliskveðjunni með t.d.:
Og nafninu þínu/nöfnunum ykkar.
Eftir hamingjuóskirnar er gott að koma með einhverja persónulega kveðju til fermingarbarnsins. Hér má auðvitað velja fleiri en einn hlut til að setja í kortið. Það er líka fallegt að skrifa stutt ljóð til þess sem er að útskrifast. Hér eru hugmyndir að alls kyns kveðjum til þess sem er að útskrifast:
Nú getur þú sett saman þína eigin persónulegu og flottu útskriftarkveðju!
Hvað á ég að skrifa í útskriftarkort? Read More »
Það vefst fyrir mörgum hvað skrifa á í fermingarkort, sérstaklega ef maður þekkir fermingarbarnið ekki vel. Heimilisvefurinn hefur tekið saman nokkrar kveðjur sem skrifa má í fermingarkort eða í siðfestukort.
Eins og með öll skrif er gott að byggja fermingarkort eða siðfestukort þannig upp að þau hafi upphaf, miðju og endi. Í kortum er þó reyndar best að byrja á ávarpi til þess sem er að fermast, en það er líka hægt að flétta ávarpið inn í upphaf kortsins. Svo tekur við smá texti fyrir miðju kortsins til að gera það persónulegra, jafnvel þótt maður þekki manneskjuna ekki vel, og loks endar maður á einhvers konar kveðju og nafninu sínu. Hér fyrir neðan eru hugmyndir að ávörpum, hvað skrifa má í upphafi, miðjunni og í lokin.
Ávörp eru mis persónuleg og fer það allt eftir því hvernig þú þekkir manneskjuna.
Eftir hamingjuóskirnar er gott að koma með einhverja persónulega kveðju til fermingarbarnsins. Hér má auðvitað velja fleiri en einn hlut til að setja í kortið. Það er líka fallegt að skrifa stutt ljóð til fermingarbarnsins eða finna fallegan texta úr Biblíunni, Hávamálum eða öðru trúarriti, eftir því sem við á. Á heimasíðu Ásatrúarfélagsins er hægt að finna kvæði sem gætu verið við hæfi í siðfestukort. Hér eru hugmyndir að alls kyns kveðjum til fermingarbarnsins:
Í lokin þarf að loka afmæliskveðjunni með t.d.:
Og nafninu þínu/nöfnunum ykkar.
Nú ættir þú að geta sett saman góða kveðju til fermingarbarnsins fyrir fermingarkortið!
Hvað á ég að skrifa í fermingarkort? Read More »
Hver kannast ekki við það að kaupa kort fyrir afmælið á síðustu stundu og þurfa að finna eitthvað til að skrifa inn í það í flýti? Hvað getur maður eiginlega skrifað í afmæliskort? Hér eru nokkrar tillögur að því.
Eins og með öll skrif er gott að byggja afmæliskort þannig upp að þau hafi upphaf, miðju og endi. Í kortum er þó reyndar best að byrja á ávarpi til þess sem á afmæli, en það er líka hægt að flétta ávarpið inn í upphaf kortsins. Svo tekur við smá texti fyrir miðju kortsins til að gera það persónulegra, jafnvel þótt maður þekki manneskjuna ekki vel, og loks endar maður á einhvers konar kveðju og nafninu sínu. Hér fyrir neðan eru hugmyndir að ávörpum, hvað skrifa má í upphafi, miðjunni og í lokin.
Ávörp eru mis persónuleg og fer það allt eftir því hvernig þú þekkir manneskjuna.
Hér eru nokkrar uppástungur til að byrja afmæliskortið. Það er vel hægt að flétta ávarpinu inn í þessar afmælisóskir með því t.d. að segja „Innilega til hamingju með daginn elsku [nafn] mín“.
Eftir hamingjuóskirnar er gott að koma með einhverja persónulega kveðju til afmælisbarnsins. Hér má auðvitað velja fleiri en einn hlut til að setja í kortið. Það er líka fallegt að skrifa stutt ljóð til afmælisbarnsins. En hér eru hugmyndir að alls kyns kveðjum til afmælisbarnsins:
Í lokin þarf að loka afmæliskveðjunni með t.d.:
Og nafninu þínu/nöfnunum ykkar.
Nú getur þú sett saman þína eigin persónulegu og flottu afmæliskveðjur fyrir afmæliskortið!
Í lokin er hér svo mjög skemmtileg síða um afmælisdaga. Hægt er að slá inn afmælisdegi afmælisbarnsins og fá upp alls konar skemmtilegar staðreyndir um aldur þess: https://you.regettingold.com/. Sumt gæti alveg verið gaman að setja í afmæliskort hjá nánum vini eða vinkonu til að stríða þeim.
Hvað á ég að skrifa í afmæliskort? Read More »
Góðar minningar eru gulls ígildi og börnin okkar geta fært okkur með okkar allra bestu minningum. Börnin vaxa hratt og því er nauðsynlegt að njóta hverrar stundar sem maður fær með þeim. Ein leið til að koma minningum á blað er að taka eins konar „viðtal“ við barnið sitt á afmælisdegi þess. Í viðtalinu eru þau spurð (eða svarað fyrir þau fyrstu tvö árin eða svo) að alls kyns hlutum sem skiptir þau máli. Listinn er ekki tæmandi og hægt er að breyta spurningunum eins og þörf er á. En viðtalið er hugsað þannig að það fari fram á hverjum afmælisdegi barnsins, svo lengi sem það nennir þessu. Það getur verið ótrúlega skemmtileg stund að skoða svo gömul viðtöl og rifja upp minningar með barninu og fá „Ó, fannst mér skemmtilegast að renna mér þegar ég var 3 ára?“ eða „Ég man ekkert eftir því þegar mér fannst grjónagrautur besti maturinn minn“ frá þeim.
Hér fyrir neðan er blað með nokkrum spurningum fyrir barnið og hægt er að láta það teikna sjálfsmynd eða líma ljósmynd af því á blaðið sem var þá tekin á afmælisdaginn. Hægt er að prenta út blaðið árlega og passa svo að geyma öll blöðin á sama stað.
Spurningar fyrir afmælisbarnið Read More »







