cloe
Mömmukökuostakaka
Mömmukökuostakaka
Mömmukökuunnendur þessa lands ættu ekki að láta þessa djúsí ostaköku fram hjá sér fara. Hér eru mömmukökur komnar í ostakökubúning og þetta gæti verið flottur eftirréttur um jólin eða í jólaboðið.
Botn
200 g mömmukökur án krems
85 g smjör
Fylling
200 g mascarponeostur
250 g vanilluskyr
100 g flórsykur
2 dl rjómi
4 matarlímsblöð
1 tsk vanillusykur
Sósa
75 g rjómatöggur
2-3 msk rjómi
Til skrauts
Rjómi
Litlar mömmukökur
1. Byrjið á að stilla ofninn á 170°C og blástur.
2. Takið fram 20 cm smelluform og setjið bökunarpappír í botninn.
3. Myljið mömmukökur án krems í matvinnsluvél og bræðið smjör. Blandið saman og hellið í smelluformið.
4. Þjappið mömmukökumylsnunum í botninn og til hliðanna á forminu.
5. Bakið í ofni í 10 mínútur og kælið síðan.
6. Á meðan er hægt að byrja á fyllingunni með því að setja mascarponeost í skál og þeytið þangað til osturinn mýkist.
7. Bætið síðan við vanilluskyri, flórsykri og vanillusykri út í og þeytið saman þar til engir kekkir eru eftir.
8. Leggið matarlímsblöðin í bleyti í köldu vatni.
9. Þeytið rjómann þar til hann er nokkuð mikið þeyttur og blandið honum svo varlega út í skyrblönduna.
10. Setjið 3-4 msk af vatni í lítinn pott og hitið. Kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið út í pottinn með vatninu. Hrærið þangað til þau bráðna.
11. Bætið við vænni skeið af ostakökufyllingunni út í matarlími og takið pottinn af hitanum. Hrærið vel og bætið svo öllu út í restina af fyllingunni og hrærið mjög vel.
12. Takið botninn fram og hellið fyllingunni ofan í hann. Setjið kökuna aftur í ísskápinn og kælið í minnst 4 klst, helst yfir nótt.
13. Ekki löngu áður en kakan verður borin fram er hægt að byrja á karamellunni. Til að gera hana þarf einfaldlega að setja rjómatöggur og rjóma í pott og hita á miðlungs hita þar til karamellurnar hafa bráðnað alveg út í rjómann.
14. Dreifið karamellunni yfir kökuna.
15. Þeytið 1-2 dl af rjóma og skreytið kökuna með honum ásamt litlum mömmukökum.
Verði ykkur að góðu!
Bestu jólamyndirnar
Bestu jólamyndirnar
Eitt af því sem við tengjum flest við jólin eru jólamyndirnar. Flest eigum við okkar uppáhalds jólamynd sem er ómissandi hluti af jólahátíðinni. Sum verða að horfa á allar Harry Potter-myndirnar yfir jólin, önnur mega ekki sleppa því að horfa á Christmas Vacation fyrir jól og enn önnur myndu segja að það kæmu engin jól án þess að horfa á Home Alone. En sama hver við teljum að sé besta jólamynd allra tíma er vel hægt að bæta við nokkrum nýjum í safnið. Í gegnum árin hafa verið gefnar út ótal margar jólamyndir og margar þeirra eru… vægast sagt hræðilegar, en inn á milli leynast gullmolar. Heimilisvefurinn hefur tekið saman nokkrar af ástsælustu jólamyndum allra tíma (sumar falla þó inn í „elska að hata“-flokkinn) og þær sem fá ágætis einkunnir á IMDB. Allar myndirnar á listanum eru með yfir 5,5 í einkunn á síðunni. Listinn er settur upp sem áskorun um að horfa á allar myndirnar og gefa þeim einkunn. Alls eru 60 bíómyndir á listanum (og því er um að gera að byrja sem fyrst til að ná að klára fyrir áramót.) Bíómyndirnar eru fjölbreyttar, allt frá væmnum rómantískum gamanmyndum og barnamyndum yfir í hrollvekjur og mynd um fyrri heimstyrjöldina.
Góða skemmtun!
Bestu jólamyndirnar Read More »
Hugmyndir að skógjöfum
Hugmyndir að skógjöfum
Það getur verið yfirþyrmandi verkefni fyrir sum að reyna að finna þrettán skógjafir fyrir desembermánuð, og þá tala ég nú ekki um ef börnin eru fleiri og finna þarf kannski 26, 39 eða 52 skógjafir! Auðvitað er oft hægt að gefa börnunum svipað eða það sama í skóinn frá sumum eða flestum jólasveinunum. Svo vill maður heldur ekki sitja uppi með fullt af litlu dóti og drasli sem krakkarnir léku sér með í fimm mínútur og svo aldrei meir. Eins þarf að passa að sveinki gefi ekki of stórar og dýrar gjafir því börn bera sig mikið saman við önnur börn og það getur verið sárt að fá mun minna en aðrir í skóinn. Áður en farið er út í að kaupa skógjafirnar er gott að pæla aðeins í því hvað krökkunum raunverulega vantar. Jólasveinarnir gætu nefnilega reddað því.
Hér eru nokkrar hugmyndir að skógjöfum sem vonandi nýtast betur en eru jafnframt ódýrar og ættu ekki að særa önnur börn:
1. Eitthvað bragðgott
Börnunum finnst æðislegt að fá eitthvað bragðgott í skóinn og yfirleitt hverfur það á nokkrum mínútum. Þetta getur verið t.d. nammi, ávaxtanammi, rúsínur, mandarína, smákökur eða eitthvað slíkt.
2. Heitt kakó
Annað sem börnunum finnst æðislegt og safnar ekki ryki upp á hillu er heitt kakó. Hægt er að kaupa t.d. Swiss Miss í pokum eða súkkulaðibombur sem settar eru út í heitt vatn eða mjólk.
3. Lego, duplo eða playmo
Að sjálfsögðu á ekki að kaupa stóru dýru settin. Betra er að geyma þau fyrir jólapakkana. Vissulega er hægt að kaupa einn stóran pakka og skipta honum í nokkrar minni gjafir eða að kaupa minnstu pakkana og gefa í skóinn. Einnig er stundum hægt að finna lego, duplo og playmo á flóamörkuðum.
4. Þroskaleikföng
Fyrir allra yngstu börnin (sem eiga eldri systkini sem fá í skóinn) er hægt að gefa þroskaleikföng, naghringi, hristur eða fleira slíkt.
5. Baðbomba eða freyðibað
Baðbombur eru skemmtilegar fyrir allan aldur (a.m.k. ef það er til baðkar á heimilinu).
6. Naglalakk
7. Krem eða maskar
Ef barnið hefur áhuga á kremum og möskum verður þetta líklegast notað fljótt.
8. Kerti
Eitthvað fallegt jólakerti eða gott ilmkerti er gaman að fá í skóinn fyrir krakka í eldri kantinum (ef þau hafa áhuga á slíku).
9. Snyrtivörur
Snyrtivörur eru ágætis skógjafir fyrir unglinga. Passið samt að hafa þær ekki dýrar.
10. Pennar og blýantar
Það er alltaf gaman að fá nýjan og skemmtilegan penna eða blýant í pennaveskið.
11. Litir
Trélitir, tússlitir, vaxlitir, klessulitir… alls konar litir til að búa til fallegar myndir.
12. Andlitsmálning
Flestum börnum finnst ótrúlega skemmtilegt að láta mála á sér andlitið og fá að vera eitthvað annað en þau eru, t.d. ljón eða prinsessa.
13. Bolli, glas, peli eða stútkanna
Gott og gagnlegt að eiga á hverju heimili.
14. Sokkar eða sokkabuxur
Það þurfa allir að eiga sokka eða sokkabuxur.
15. Lyklakippa
Gaman er að fá flotta lyklakippu fyrir lyklana.
16. Veski eða budda
Vesti fyrir kortin eða budda fyrir klinkið.
17. Gjafabréf
Séu gjafabréfin ekki of dýr er hægt að gefa slíkt í skóinn. Þetta geta t.d. verið gjafabréf í ís, bíó eða annað slíkt. Einnig má búa til heimatilbúin gjafabréf sem gilda t.d. til að fá að velja hvað er í matinn eða að velja bíómynd fyrir næsta kósýkvöld.
18. Teygjur og spennur
Börn með sítt hár þurfa oft nýjar teygjur eða spennur.
19. Popp
Einn popppoki í örbylgjuofninn og málið er dautt.
20. Tyggjó
Tyggjópakki er mjög spennandi fyrir börnum á ákveðnum aldri sem fá kannski ekki oft tyggjó.
21. Skrúbbur
Hentar vel í skógjöf fyrir unglinga.
22. Leir
Það er ofsalega gaman og mikil núvitund í því að leira.
23. Límmiðar og límmiðabók
Að safna límmiðum í límmiðabók var mikið sport í mínu ungdæmi.
24. Vatnslitir, málning eða fingramálning
Fer eftir aldri og áhuga en allt er þetta mjög góð og skemmtileg afþreying.
25. Spil
Hér verður að passa sig að hafa spilin ekki of dýr eða „flott“. Það er eitt að fá fallegan spilastokk í skóinn og annað að fá Ticket to Ride eða álíka spil. Ferðaútgáfur af spilum gætu hentað, eða klassísk og einföld spil eins og slönguspilið, minnisspil, lúdó og slíkt.
26. Jólaskraut
Það er gaman fyrir krakkana að jólaskraut í herbergið eða jólakúlu til að hengja á jólatréð.
27. Bók
Hér þarf aftur að passa að hafa bókina ekki of dýra. Litlar bækur eins og litlu smábarnabækurnar eru tilvaldar í skóinn.
28. Bangsi
Lítill krúttlegu bangsi í skóinn fyrir þessi yngstu er góð gjöf.
29. Fótboltamyndir eða pókemonspil
Fyrir þau börn sem eru að safna slíkum myndum er þetta fyrirtaks gjöf.
30. Púsl
Lítið púsluspil í skóinn er frábær gjöf.
31. Perlur
Einn poki af perlum eða nýtt perluspjald fyrir börn sem hafa gaman af því að perla. Einnig er hægt að prenta út perl-„uppskriftir“ á netinu.
32. Litamynd eða litabók
Litabók eða vel valin litamynd er tilvalin skógjöf.
33. Stílabók, teikniblokk eða dagbók
Þá geta krakkarnir skrifað sögur, teiknað myndir eða skrifað í dagbók.
34. Húfur og vettlingar
Eitthvað hlýtt til að leika sér í snjónum.
35. Náttföt
Sígild gjöf frá síðasta jólasveininum, Kertasníki.
36. Handavinna
Skemmtileg handavinna getur stytt biða eftir jólnunum. Hægt er að gefa krökkunum litla útsaumsmynd, garn og prjóna eða annað slíkt.
37. Smákökuuppskrift og hráefni (eða tilbúið deig)
38. Þrautabók eða krossgátubók
39. Tannbursti
40. Morgunverður
Eitthvað sem barnið getur borðaði í morgunmat, t.d. jólajógúrt, lítill morgunkornspakki eða annað slíkt.
Fyrir þessi allra yngstu
Fyrir þessi allra yngstu, undir tveggja ára aldurinn, er hægt að kaupa eitthvað sem vantar. Slefsmekkur, nagdót, samfella, bleyjur, snuð, skvísur/barnamatur og fleira í þeim dúr er sniðugt að nýta sem skógjafir fyrir þau. Þau bera sig að sjálfsögðu ekki saman við önnur börn svo óhætt er að gefa ýmislegt dýrara ef þarf og ef eldri systkini fatta ekki að þetta sé „stærri“ gjöf.
Hugmyndir að skógjöfum Read More »
70 hugmyndir fyrir samverudagatal
70 hugmyndir fyrir samverudagatal
Margar fjölskyldur eru farnar að hafa samverudagatal í desember til að eiga góðar stundir saman á meðan beðið er eftir jólunum. Það er ýmislegt hægt að gera og margt kostar lítið sem ekki neitt. Mikilvægt er að hafa þetta ekki of flókið, það þarf ekki vera full dagskrá alla daga, nóg annað er að gera á þessum tíma. Hér eru nokkrar hugmyndir að samverustundum fyrir fjölskyldur sem hægt er að gera nánast hvar sem maður er á landinu.
- Hlusta saman á jólasögu.
- Hitta jólasvein.
- Fá lánaða jólabók á bókasafninu.
- Höggva niður jólatré eða velja það á næsta sölustað.
- Fara í jólasunnudagaskóla.
- Kaupa eða búa til eitthvað jólaskraut á jólatréð.
- Sjá þegar jólatré bæjarins er tendrað.
- Fara í jólagöngutúr með heitt kakó í brúsa.
- Fara á kaffihús og fá ykkur heitt súkkulaði.
- Fara í jólaljósbíltúr (á náttfötunum).
- Skrifa jólakort.
- Fara á jólasýningu.
- Renna á sleða eða snjósleða.
- Skrifa bréf til jólasveinsins.
- Syngja jólalög.
- Fara á skíði.
- Fara á jólatónleika.
- Skreyta fyrir jólin.
- Skoða gamlar fjölskyldumyndir og myndbönd og rifja upp gamla og góða tíma.
- Kynnið ykkur hvernig jólin eru haldin í öðru landi.
- Baka smákökur.
- Hafa jólasögustund við jólatréð.
- Baka piparkökur.
- Búa til piparkökuhús.
- Leysa jólaþrautir (t.d. orðasúpu með jólaþema).
- Fara á skauta.
- Búa til fuglamat og gefa fuglunum.
- Búa til jólakrans.
- Fara í göngutúr og skoða jólaljósin
- Baka smákökur og gefa í frísskáp/þeim sem minna mega sín
- Taka til leikföng sem eru ekki lengur notuð og gefa í gott málefni
- Horfa á jólamynd
- Horfa saman á jóladagatal sjónvarpsins
- Kveikja á aðventukransinum
- Föndra jólaskraut
- Klippa út snjókorn og hengja í gluggann
- Búa til ykkar eigin gjafapappír
- Pakka inn jólagjöfum
- Lita jólalitamynd
- Föndra merkimiða á jólagjafirnar
- Gefa mat í frískáp
- Búa til og fara í jólaratleik
- Jólabingó!
- Búa til músastiga
- Perla eitthvað jólalegt
- Sauma út jólamynd
- Fara í heimsókn
- Búa til jólaskraut úr trölladeigi eða leir
- Búa til snjókarl
- Búa til jólakahoot
- Læra að segja „gleðileg jól“ á öðrum tungumálum
- Búa til jólakonfekt
- Spila saman
- Púsla saman
- Fara á jólamarkað
- Búa til (barnvænt) jólaglögg
- Vera í ljótum jólapeysum
- Fara í rautt freyðibað
- Ákveða saman hvað á að vera í jólamatinn
- Búa til heimatilbúnar gjafir
- Hafa jólabröns
- Skreyta gluggana með gluggapennum
- Skera út laufabrauð
- Baka lagköku
- Baka jólasmákökur frá öðru landi
- Dansa við jólalög
- Setja negulnagla í mandarínur eða appelsínur
- Jólalautarferð á gólfinu í stofunni
- Taka jólamynd af fjölskyldunni
- Smákökusamkeppni fjölskyldunnar
70 hugmyndir fyrir samverudagatal Read More »
Madesu – baunaréttur frá Kongó
Madesu - baunaréttur frá Kongó
Hér kemur uppskrift að vegan baunarétti frá Kongó. Nafnið þýðir einfaldlega baunir á lingala og rétturinn er borðaður víða í mið-Afríku. Stundum er kjöti eða fiski bætt út í en það er ekki nauðsynlegt, rétturinn bragðast dásamlega einn og sér og það er tilvalið að elda hann þegar kólna fer í veðri.
Það getur verið vandasamt að fá pálmaolíu en hún fæst í öllum afrískum verslunum og í Fisku. Ef olían fæst ekki á þínu svæði er vel hægt að nota venjulega matarolíu.
1 laukur, saxaður
4 hvítlauksgeirar, saxaðir
3 vorlaukar, sneiddir
1 dós hakkaðir tómatar
1 tsk chilimauk
2 lárviðarlauf
1 tsk kóríanderduft
500 g blandaðar baunir í dós
2 grænmetisteningar
1/4 tsk múskat
1 lúka blandaðar kryddjurtir (ég notaði steinselju og kóríander)
rauð pálmaolía (eða matarolía)
salt (ef þarf)
1. Byrjið á að skera niður grænmetið og hafa það tilbúið.
2. Hitið olíu á pönnu og steikið lauk, hvítlauk og vorlauk í nokkrar mínútur.
3. Bætið við tómötum, lárviðarlaufum og chilimauki og látið malla í 10-15 mínútur.
4. Setjið kóríanderduft, baunir, grænmetisteninga, múskat og kryddjurtir út á pönnuna og hrærið vel.
5. Bætið við 2 dl af vatni, hrærið og leyfið svo sósunni að þykkna aftur í 15-20 mínútur.
6. Smakkið til með salti ef þarf og berið fram með hrísgrjónum.
Þennan bragðmikla rétt er vel hægt að frysta og borða síðar. Rétturinn versnar síður en svo við upphitun, eins og á við um marga pottrétti.
Madesu – baunaréttur frá Kongó Read More »
Einfaldir og fljótlegir búningar fyrir Hrekkjavökuna
Einfaldir og fljótlegir hrekkjavökubúningar
Það styttist í Hrekkjavökuna. Sum okkar eru farin að halda upp á þennan dag, oft fyrir börnin en mörgum þykir gaman að fara alla leið með skreytingar og búninga. Í kringum þennan árstíma getur maður þurft að mæta í búningi eitthvert, t.d. í búningapartý eða jafnvel í vinnuna. Fólk hefur mismikinn áhuga og tíma til að finna sér búning. Enn aðrir eru ekki tilbúnir til að kaupa búning eða hafa ekki efni á slíku. Hér er því listi af búningnum sem eru einfaldir og þarfnast ekki mjög mikillar fyrirhafnar, en eru fyrst og fremst ekki keyptir nýir (þeir eru alltaf svo lélegir). Búningarnir ganga líka allir fyrir öskudaginn og eru ekkert endilega allir neitt hræðilegir eða hrekkjavökulegir. Ef maður vill hafa búningana hrekkjavökulegri er einfaldlega hægt að bæta við gerviblóði eða marblettum (með augnskugga) við búningana.
Draugur
Einfaldur og sígildur búningur. Hvítt lak og skæri er allt sem þarf!
Túristi
Þetta er annar mjög einfaldur búningur sem er mjög líklega til í fataskápnum hjá þér. Það sem þarf er t.d. stuttbuxur, stuttermabolur eða hawaískyrta, sandalar (og sokkar), sólgleraugu, sólhattur eða derhúfa, selfiestöng/myndavél, ferðabæklingar, bakpoki o.fl. í þeim dúr. Eitthvað sem (hallærislegur) túristi í sólarlandaferð myndi klæðast eða hafa með sér. Til þess að gera búninginn extra flottann er gott að setja vel af sólarpúðri og kinnalit í andlitið til að virðast útitekinn og hálfbrunninn í framan.
Rokkstjarna
Annar búningur sem hægt er að búa til úr því sem er til í fataskápnum nú þegar (eða auðveldlega hægt að fá lánað). Það sem þarf er t.d. svört eða dökk föt, leðurjakki eða gallajakki, úfið hár, dökkur augnfarði og hugsanlega svart naglalakk, gervitattú og svartur varalitur. Til að gera búninginn enn betri væri hægt að hafa hljóðnema eða gítar með. Hægt er að búa til einfaldan hljóðnema með því að setja álpappír utan um písk.
Amma/afi
Það er mjög auðvelt að þykjast vera gamalt fólk. Best væri ef hægt væri að spreyja hárið grátt/hvítt en það er þó ekki nauðsynlegt. Ömmur geta klætt sig í (ýkt) ömmuleg föt, t.d. kjól og svuntu, verið með staf, gleraugu og sjal. Þær geta einnig haft með sér kökukrús með smákökum til að bjóða upp á. Við erum að vinna með stereotýpur hérna. Afar þurfa staf, axlarbönd, gleraugu og prjónavesti.
Hippi
Nú þegar útvíðar buxur eru komnar aftur í tísku er mjög auðvelt að klæða sig sem hippa. Það sem þarf eru útvíðar buxur, stuttermabolur með orðinu „peace“ eða peace-merkinu eða annar hippalegur efri partur, slegið og helst sítt hár, hárband og mögulega hálsmen með peace-merkinu. Svo væri hægt að mála blóm á aðra kinnina og passa að mynda peace-merki með puttunum allan daginn.
Barbie, Ken og Elle Woods
Barbiemyndin var vinsæl í sumar og mörg klæddu sig upp eins og Barbie fyrir bíósýningar og það er vel hægt að endurnýta þann búning á Hrekkjavökunni. Bleikur klæðnaður og farði. Það er ekki flóknara en það. Einnig er hægt að segjast vera Elle Woods úr Legally Blonde en þá mætti bæta við hundabangsa.
Strákar, þið getið auðvitað verið Ken.
Kokkur
Til að búa til kokkabúning þyrfti hvít eða svört föt og svuntu og svo væri hægt að vera annað hvort með kokkahatt eða einfaldlega hárnet. Hægt er svo að halda á píski eða sleif. Það þarf ekki að vera flóknara en það.
Mary Poppins
Annar búningur sem gæti verið til í fataskápnum er Mary Poppins. Það sem þarf er dökkt millisítt pils, dökkur blazer, hvít skyrta, rauð slaufa/borði eða trefill, svartur skór, hattur og hægt er að föndra blóm á hann, regnhlíf og síðast en ekki síst góð taska.
Supercalifragilisticexpialidocious!
Mótmælandi
Mótmælandi getur nokkurn veginn klæðst hverju sem er. Gallabuxur og bolur henta t.d. mjög vel. Síðan þarf bara að útbúa spjald með mótmælaorðum.
Klikkuð kattakona eða karl (Crazy cat lady)
Ef þú átt til kattabanga, helst nokkra, er ekkert mál að skella í svona búning. Þú þarft, auk bangsanna, skrýtinn klæðnað eða slopp. Klæðnaðurinn getur verið alls konar.
Einfaldir og fljótlegir búningar fyrir Hrekkjavökuna Read More »
Einfalt Caprese-salat
Einfalt Caprese-salat
Caprese-salat er salat sem er upphaflega frá eyjunni Capri við Ítalíu. Þetta sígilda salat er fullkominn forréttur í matarboð, á brönshlaðborðið eða ofan á snittur. Það er ótrúlega einfalt að búa það til og það þarf ekki langan lista af hráefnum. Svo er það líka svo yndislega ferskt og gott.
Caprese-salat
1-2 tómatar
1-2 mozzarellakúlur
basilika
ólífuolía
salt
pipar
balsamgljái
Aðferð:
- Sneiðið tómata og mozzarellakúlur. Rífið basilikublöðin af basilikunni.
- Raðið mozzarellasneið, tómatsneið og basilikublaði til skiptis.
- Setjið örlítið af ólífuolíu yfir salatið.
- Saltið og piprið, en passið að það þarf alls ekki mikið.
- Gott er að setja balsamgljáa yfir salatið rétt áður en það er borið fram.
Buon appetito! Verði ykkur að góðu!
Einfalt Caprese-salat Read More »
Hugmyndir að daglegum hefðum fjölskyldunnar
Hugmyndir að daglegum hefðum fjölskyldunnar
Eins og Heimilisvefurinn hefur áður fjallað um, eru hefðir mjög mikilvægar til að styrkja tengsl fjölskyldumeðlima. Við, fullorðan fólkið í fjölskyldunni, þurfum að búa til og þróa þessar hefðir til að búa til góðar minningar fyrir börnin okkar. Þessar hefðir þurfa ekki að vera flóknar, litlu hlutirnir skipta miklu máli. Hér eru nokkur dæmi um einfaldar hefðir fyrir fjölskyldur sem hægt er að framkvæma á hverjum degi:
- Að bjóða góðan dag og góða nótt.
- Að heilast þegar einhver kemur heim og kveðja þegar einhver fer.
- Morgunknús á morgnana.
- Gefa sér tíma til að lesa sama, t.d. sögu fyrir svefninn eða gera heimalestur grunnskólabarnanna að góðri og notalegri stund.
- Kúra uppi í rúmi eftir langan dag eða kúr fyrir svefninn.
- Elda kvöldmatinn saman.
- Borða kvöldmatinn öll saman við matarborðið og tala saman um daginn með opnum spurningum. Opnar spurningar eru spurningar sem krefjast meira en að viðkomandi svari með já-i eða nei-i, t.d. “Hvað gerðir þú í skólanum í dag?“ frekar en “Var gaman í skólanum í dag?” Ef erfitt er að finna upp á einhverju til að tala um væri líka hægt að búa til krukku með alls konar miðum með hugmyndum og spurningum til að hefja samræðurnar.
- Borða alltaf úti ef veðrið er nógu gott (og aðstæður leyfa).
- Borða við kertaljós þegar það er orðið dimmt um kvöldmatarleytið.
- Fara í göngutúr saman, t.d. eftir kvöldmat.
- Fara út að leika, t.d. eftir leikskóla eða eftir kvöldmat.
- Horfa á barnatímann í línulegri dagskrá.
- Skrifa miða með fallegum orðum og skilja eftir á góðum stöðum.
- Hreyfa sig saman, fara t.d. út að hlaupa, í jóga eða annað slíkt.
- Halda sameiginlega fjölskyldudagbók og skrifa um daginn.
Eins og þið sjáið eru þetta flest allt hugmyndir sem ætti ekki að vera mjög erfitt að koma að í amstri dagsins. Að sjálfsögðu er ekki ætlast til að allir geri þetta allt, fjölskyldur þurfa að velja og hafna eftir því sem hentar þeim.
Hugmyndir að daglegum hefðum fjölskyldunnar Read More »
Hvað get ég gert með barninu í fæðingarorlofinu? – veturinn ’23-’24
Hvað get ég gert með barninu í fæðingarorlofinu? - veturinn '23-'24
Fyrir mörgum er fæðingarorlofið dásamlegur tími þar sem maður kynnist litla barninu sínu. Fyrir öðrum er þetta krefjandi tími. Sumum leiðist í fæðingarorlofinu, finnst lítið að gera og dagarnir allir eins. Það þarf alls ekki að vera svoleiðis. Það er margt hægt að gera með barninu í fæðingarorlofinu. Heimilisvefurinn hefur tekið saman nokkra hluti sem hægt er að gera með 0-2 ára börnum – utan heimilisins. Endilega sendir skilaboð eða kommentið hér fyrir neðan ef þið vitið um eitthvað fleira skemmtilegt. Á listana bætast við hugmyndir um leið og þær uppgötvast.
Austurland
Múlaþing
Foreldramorgnar í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju á fimmtudögum kl. 10-12, Hörgsási 4.
Leikskólalóðir í Múlaþingi.
Vopnafjörður
Leikskólinn Brekkubær.
Höfuðborgarsvæðið
Foreldramorgnar og krílastundir
Margir staðir bjóða upp á foreldramorgna eða krílastundir þar sem börn og foreldrar geta komið saman og hitt önnur börn og foreldra þeirra. Hér eru þeir viðburðir sem standa foreldrum og börnum til boða eftir vikudögum.
Mánudagar
- Foreldramorgnar Bókasafns Hafnarfjarðar á sumum mánudögum kl. 10, Strandgötu 1 í Hafnarfirði.
- Krílakór yngri í Fríkirkjunni í Hafnarfirði er fyrir börn á aldrinum 1-2 ára og fer fram alla mánudaga kl. 16:30-17:00 í safnaðarheimili kirkjunnar. Ekkert kostar á námskeiðið en nauðsynlegt er að skrá sig. Fríkirkjan er staðsett á Linnetsstíg 6 í Hafnarfirði.
Þriðjudagar
- Fjölskyldumorgnar í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal alla þriðjudaga kl. 10:30-11:30, Úlfarsbraut 122-124 í Reykjavík.
- Foreldramorgnar í Lindakirkju alla þriðjudaga milli kl. 10 og 12, Uppsölum í Kópavogi.
- Foreldramorgnar í Vídalínskirkju alla þriðjudaga kl. 10:30, Kirkjulundi 3 í Garðabæ.
- Krílasálmar Fríkirkjunnar í Hafnarfirði fyrir 3-18 mánaða kríli alla þriðjudaga kl. 10:30-11:10. Námskeiðið er ókeypis.
- Opni leikskólinn Memmm, Aflagranda, alla þriðjudaga kl. 10-12, Aflagranda 40 í Reykjavík.
Miðvikudagar
- Alþjóðlegir foreldramorgnar í Ástjarnarkirkju alla miðvikudaga kl. 10-12 og fer starfið fram á íslensku og ensku. Ástjarnarkirkja er staðsett á Kirkjuvöllum 1 í Hafnarfirði.
- Fjölskyldumorgnar í Bessastaðakirkju alla miðvikudaga frá kl. 10:30-12, safnaðarheimilinu Brekkuskógum 1.
- Foreldramorgnar í Hallgrímskirkju (Kórkjallara, gengið inn frá Eiríksgötu) á miðvikudögum kl. 10-12.
- Foreldramorgnar og krílasálmar í Guðríðarkirkju í Grafarholti alla miðvikudaga milli kl. 10 og 12, Kirkjustétt 8 í Reykjavík.
- Foreldramorgnar í Háteigskirkju á miðvikudögum kl. 10-11:30, Háteigsvegi 27-29 í Reykjavík.
- Krílatónar í Ástjarnarkirkju fyrir 1-2 ára börn alla miðvikudaga kl. 16:30-17:00. Nauðsynlegt er að skrá sig en þátttaka er ókeypis. Ástjarnarkirkja er staðsett á Kirkjuvöllum 1 í Hafnarfirði.
- Opni leikskólinn: Viltu vera Memmm í Gerðubergi alla miðvikudaga kl. 10-13, Gerðubergi 3-5 í Reykjavík, neðri hæð.
Fimmtudagar
- Fjölskyldumorgnar í Borgarbókasafninu Grófinni alla fimmtudaga kl. 10:30-11:30.
- Foreldramorgnar Bókasafns Kópavogs 2. Og 4. Fimmtudag í mánuði kl. 10, Hamraborg 6a í Kópavogi.
- Foreldramorgnar í Breiðholtskirkju á fimmtudögum kl. 10-12, Þangbakka 5 í Reykjavík.
- Foreldramorgnar í Bústaðakirkju á fimmtudögum kl. 10-12, Tunguvegi 25 í Reykjavík.
- Foreldramorgnar í Lágafellskirkju á fimmtudögum kl. 10-12, Þverholti 3 í Mosfellsbæ.
- Foreldramorgnar í Seltjarnarneskirkju á fimmtudögum kl. 10-12, við Kirkjubraut á Seltjarnarnesi.
- Foreldraspjall á Bókasafni Garðabæjar einn fimmtudag í mánuði kl. 10:30, Garðatorgi 7 í Garðabæ.
- Opni leikskólinn Memmm, Bólstaðarhlíð alla fimmtudaga kl. 13-15, Bólstaðarhlíð 43 í Reykjavík.
Föstudagar
- Foreldramorgnar í Fella- og Hólakirkju á föstudögum kl. 10-12, Hólabergi 88 í Reykjavík.
- Krílasálmar í Lindakirkju á föstudögum kl. 10:30-11:15. Krílasálmar er tónlistarnámskeið (15. sept-6. okt) fyrir 3-18 mánaða kríli og skráning fer fram á síðu Lindakirkju. Námskeiðið kostar 8.000 kr.
- Snillingafimi fyrir 5-12 mánaða kríli kl. 11 í Hreyfilandi. Kostnaður er 51.000 kr. Fyrir önnina. Hreyfiland er staðsett í Dugguvogi 4 í Reykjavík.
- Ungatími hjá Gerplu, fimmleikasalurinn (Versölum 3 í Kópavogi) er opinn fyrir börn á aldrinum 0-2 ára á föstudögum frá 11:30-13. Það kostar 500 kr. inn.
Laugardagar
- Hreyfifimi fyrir 1-2 ára í Hreyfilandi á laugardögum. Kostnaður er 51.000 kr. fyrir önnina. Hreyfiland er staðsett í Dugguvogi 4 í Reykjavík.
Göngutúrar með vagn eða kerru
Hér eru hugmyndir að fallegum stöðum á höfuðborgarsvæðinu til að fara í göngutúr með barnið í vagni eða kerru, svona þegar hverfið þitt er orðið leiðigjarnt og þú þarft tilbreytingu.
- Borgarholt í Kópavogi
- Elliðaárdalurinn í Reykjavík
- Fossvogurinn og Fossvogsdalur í Reykjavík/Kópavogi
- Grasagarðurinn í Laugardalnum í Reykjavík
- Grótta á Seltjarnarnesi
- Guðmundarlundur í Kópavogi
- Hallargarðurinn í Reykjavík
- Hlíðargarður í Kópavogi
- Klambratún í Reykjavík
- Kópavogsdalur í Kópavogi
- Landakotstún í Reykjavík
- Laugardalurinn í Reykjavík
- Miðbær Hafnarfjarðar
- Miðbær Reykjavíkur
- Miðsvæði Efra-Breiðholts í Reykjavík
- Seljatjörn í Seljahverfi í Reykjavík
- Tjörnin og Hljómskálagarðurinn í Reykjavík
- Víðistaðatún í Hafnarfirði
- Úlfarsárdalur í Reykjavík
- Öskjuhlíð í Reykjavík
Svo er auðvitað alltaf hægt að kanna nýtt hverfi.
Leiksvæði og önnur afþreying
Staðir sem bjóða upp á leiksvæði eða afþreyingu fyrir 0-2 ára börn.
- Barnaloppan býður viðskiptavinum upp á leikhorn fyrir börn, Skeifunni 11a í Reykjavík. Foreldrar þurfa að sjálfsögðu að fylgjast með börnunum sínum.
- Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgötu 1 í Hafnarfirði.
- Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a í Kópavogi.
- Borgarbókasafnið Árbæ, Hraunbæ 119 í Reykjavík.
- Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðubergi 3-5 í Reykjavík.
- Borgarbókasafnið í Grófinni, Tryggvagötu 15 í Reykjavík.
- Borgarbókasafnið í Sólheimum, Sólheimum 23a í Reykjavík.
- Borgarbókasafnið í Spönginni, Spönginni 41 í Reykjavík.
- Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122-124 í Reykjavík.
- Fjölskylduland, Dugguvogi 4 í Reykjavík – 2.500 kr. fyrir börnin.
- Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Laugardalnum í Reykjavík (Múlavegur 2) – ókeypis fyrir 5 ára og yngri, 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri.
- Frístundagarðurinn í Gufunesi í Reykjavík er með flottan leikvöll.
- Gerðarsafn, Hamraborg 4 í Kópavogi.
- Höfuðstöðin, Rafstöðvarvegi 1a í Reykjavík.
- Kringlan, finna má opin leiksvæði fyrir börn í Kringlunni.
- Leikskólalóðir í Garðabæ.
- Leikskólalóðir í Hafnarfirði.
- Leikskólalóðir í Mosfellsbæ.
- Leikskólalóðir í Kópavogi.
- Leikskólalóðir í Reykjavík.
- Leikskóli Seltjarnarness.
- Leikvellir í Ártúnsholti. Ungbarnarólur eru sérstaklega merktar á kortinu.
- Leikvellir í Neðra Breiðholti. Ungbarnarólur eru sérstaklega merktar á kortinu.
- Nauthólsvík í Reykjavík.
- Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6 í Kópavogi – aðgangur ókeypis.
- Norræna húsið, Sæmundargötu 11 í Reykjavík (leiksvæði á bókasafni).
- Skopp, Dalvegi 10-14 í Kópavogi. BarnaSkopp kostar 1.599 kr.
- Smáralind, finna má opin leiksvæði fyrir börn í Smáralind.
- Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu.
- Ungbarnasundsnámskeið hjá ýmsum aðilum.
- Vatnsleikjagarðurinn við Elliðaárstöð í Reykjavík.
Veitingastaðir og kaffihús
Veitingastaðir og kaffihús með barnasvæðum eða öðru sem hentar eða vekur áhuga 0-2 ára barna.
- 27 mathús og bar, Víkurhvarfi 1 í Kópavogi.
- Arna ís- og kaffibar, Eiðistorgi 15 á Seltjarnarnesi.
- Kaffi Dalur, Sundlaugarvegi 34 í Reykjavík.
- Kaffi Flóran í Grasagarðinum í Laugardalnum í Reykjavík.
- Kaffi Laugalækur, Laugarnesvegi 74a í Reykjavík.
- Kaffitár á Höfða, Stórhöfða 17 í Reykjavík.
- Kaffitár á Nýbýlavegi, Nýbýlavegi 18 í Kópavogi.
- Kastalakaffi, Suðurlandsbraut 72 í Reykjavík.
- Klambrar Bistro, Kjarvalsstöðum, Flókagötu 24 í Reykjavík.
- Mathús Garðabæjar, Garðatorgi 4b í Garðabæ.
- Spilakaffi, Suðurlandsbraut 48 í Reykjavík. Kjallarinn, kostar 1.000 kr. inn.
- Spíran í Garðheimum, Stekkjarbakka 6 í Reykjavík.
- The Laundromat Cafe, Austurstræti 9 í Reykjavík.
Norðurland
Akureyri
Foreldramorgnar í Glerárkirkju alla fimmtudaga kl. 10-12, Bugðusíðu 3.
Húsavík
Foreldramorgnar í Húsavíkurkirkju.
Sauðárkrókur
Foreldramorgnar í Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju alla miðvikudaga kl. 10-12.
Suðurland og Suðurnes
Grindavík
Foreldramorgnar í Grindavíkurkirkju á þriðjudögum kl. 10-12, við Ránargötu.
Leikskólalóðir í Grindavík.
Sundlaug Grindavíkur, Austurvegi 1.
Reykjanesbær
Bókasafn Reykjanesbæjar er með barnahorn með bókum og sætum.
Fjölskyldudagar á Bókasafni Reykjanesbæjar á laugardögum.
Foreldramorgnar á Bókasafni Reykjanesbæjar á fimmtudögum kl. 11.
Krílakrútt í safnaðarheimilinu Innri Njarðvík á miðvikudögum kl. 10:30-12.
Leikskólalóðir í Reykjanesbæ.
Sundlaugar í Reykjanesbæ.
Ungbarnasund í Reykjanesbæ. Skráning nauðsynleg.
Selfoss
Foreldramorgnar í Selfosskirkju á miðvikudögum kl. 11-12:30, Kirkjuvegi.
Suðurnesjabær
Foreldramorgnar í Kiwanishúsinu í Garði alla miðvikudaga kl. 10:30-12/12:30, Heiðartúni 4.
Fjöruferð á Garðskaga.
Leikskólalóðir í Suðurnesjabæ.
Sundlaugar í Suðurnesjabæ.
Þorlákshöfn
Foreldramorgnar í Þorlákskirkju á miðvikudögum kl. 10-12, Skálholtsbraut.
Vesturland og Vestfirðir
Akranes
Foreldramorgnar á Bókasafni Akraness á fimmtudögum kl. 10.
Ísafjarðarbær
Foreldramorgnar á Bókasafninu á Ísafirði á þriðjudögum.
Leikskólalóðir í Ísafjarðarbæ.
Stykkishólmur
Foreldramorgnar í Stykkishólmskirkju á fimmtudögum kl. 11.
Ef þú veist um fleiri staði sem bjóða upp á eitthvað fyrir þessi allra yngstu eða sérð að sumt á ekki við lengur skaltu endilega senda okkur línu á heimilisvefurinn@heimilisvefurinn.is.
Hvað get ég gert með barninu í fæðingarorlofinu? – veturinn ’23-’24 Read More »








